Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Sólborg: „Ég var hvött til að drepa mig og OFT hótað nauðgun“

Sólborg Guð­brands­dóttir tón­lista­kona, fyr­ir­les­ari og lög­fræði­nemi, sem hélt úti aðgang­inum „Fávitar“ á Instagram í fimm ár, segir í Tísti að henni hafi oft verið sagt  að drepa sig, hótað nauðg­unum og fleira í þeim dúr. Allt kom þetta frá ung­lingum sem greini­lega kunna ekki að haga sér, að minnsta kosti ekki á ver­ald­ar­vefnum. Fávitar var átak gegn staf­rænu og ann­ars konar kyn­ferð­is­of­beldi. Fylgj­enda­hópur Fávita er við það að detta í 31.000 manns.

Sólborg með skýrsl­una góðu. Mynd af Instagram

„Á meðan ég var með Fávita-gram­mið var ég hvött til að drepa mig, mér var OFT hótað nauðgun og strákar sendu mér heim­il­is­fang fjöl­skyld­unnar minnar og sögðu mér að þeir vissu hvar ég svæfi. Flestir voru þeir ung­lingar. En bíðum endi­lega með kennslu um heil­brigð sam­skipti“.

Instagram reikn­ing­ur­inn Fávitar

Gaf út bók og var að ljúka við skýrslu fyrir menntamálaráðherra

Sólborg gaf einnig út bók sem bar nafnið Fávitar sem kom út fyrir síð­ustu jól og seld­ist bókin upp um tíma svo vin­sæl var hún. Nýlega birti Sólborg færslu á instagram reikn­ingi Fávita: „Hálfs árs vinnu fyrir mennta­mála­ráð­herra er nú lokið og afrakst­ur­inn er skýrsla sem verður afhent á næstu dögum, með til­lögum um mark­vissa kennslu um kyn­heil­brigði og ofbeld­is­for­varnir í grunn- og fram­halds­skólum: Breyt­ingar á námskrám, inn­taki kenn­ara­mennt­unar, starfs­þróun fag­fólks, aukið aðgengi að náms­efni, til­lögur að laga­breyt­ingum o.fl. Við leggjum það til að kyn­fræðslan verði gerð að skyldu­fagi fyrir öll börn, á hverju ári, á öllum skóla­stigum og nú er það stjórn­mála­fólks að keyra þetta í gang, ef raun­veru­legur vilji er fyrir hendi. Ég er viss um að þessar breyt­ingar muni m.a. fækka ofbeld­is­málum, kyn­sjúk­dóma­smitum og óráð­gerðum þung­unum og bæta líðan fólks. Ef síð­ustu mán­uðir hafa kennt okkur eitt­hvað þá er það hversu mik­il­vægt það er að við verndum börnin okkar og tryggjum þessa kennslu í skóla­kerf­inu í eitt skipti fyrir öll, fyrir öll ung­menni á Íslandi, óháð stöðu þeirra, aldri, búsetu, fötlun, kyn­hneigð, kyn­vit­und eða upp­runa“.

Bókin sem Sólborg gaf út fyrir jólin 2020 Mynd af Instagram

Það er umtalað að ungt fólk í dag kunni ekki heil­brigð sam­skipti, á ver­ald­ar­vefnum í það minnsta. Mjög algengt er að sjá skrif sem segja ungu fólki að drepa sig og nauðg­unum hótað svo fátt eitt sé nefnt. Oft hefur þeirri spurn­ingu verið varpað fram á milli manna á sam­fé­lags­miðlum, hvort for­eldrar þess­ara ung­linga og barna séu ekk­ert að fylgj­ast með hvernig þau eru að hegða sér á sam­fé­lags­miðlum. Þetta er stórt og grafal­var­legt vanda­mál sem grass­erar í nútíma­sam­fé­lagi. Það eru því frá­bærar fréttir að Sólborg og auð­vitað fleiri séu að reyna að fást við vanda­málið innan skóla­kerf­is­ins. Það má þó ekki gleyma því að for­eldrar bera hér mikla ábyrgð og verða að bregð­ast við því það er heima sem kennsla í mann­legum sam­skiptum hefst og eft­ir­lit for­eldra með hegðun og fram­komu barna er það sem skiptir öllu máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas