Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Háskólakona ársins er Margrét Vilborg

Félag háskóla­kvenna hefur valið Háskóla­konu árs­ins 2019. Fyrir val­inu varð dr. Margrét Vilborg Bjarna­dóttir, aðstoð­ar­pró­fessor í aðgerða­grein­ingu og töl­fræði við Robert H. Smith við­skipta­há­skól­ann í Maryland í Banda­ríkj­unum og stofn­andi sprota­fyr­ir­tæk­is­ins PayAna­lyt­ics.

Margrét Vilborg lauk BS gráðu í véla- og iðn­að­ar­verk­fræði frá Háskóla Íslands 2001 og hlaut þá hæstu ein­kunn sem skráð hafði verið. Hún lauk dokt­ors­gráðu frá MIT í Cambridge 2008. Rann­sókn­ar­rit­gerð hennar ber heitið Data-Driven Approach to Health Care – Applications Using Claims Data.

Margrét Vilborg hefur verið með­höf­undur í fjöl­mörgum rann­sókn­ar­greinum sem birtar hafa verið í við­ur­kenndum rit­rýndum tíma­ritum. Hún hefur hlotið verð­laun og við­ur­kenn­ingar fyrir kennslu, meðal ann­ars var hún valin besti kenn­ar­inn í MBA val­greinum árið 2018 og hlaut virt kennslu­verð­laun Robert H. Smith við­skipta­há­skól­ans árið 2018-19.

Margrét Vilborg er jafn­framt stofn­andi sprota­fyr­ir­tæk­is­ins PayAnalytics þar sem þróuð hefur verið hug­bún­að­ar­lausn sem gerir stofn­unum og fyr­ir­tækjum kleift að fram­kvæma launa­grein­ingar, skoða áhrif launa­á­kvarð­ana og ráð­ast á launa­bil kynj­anna með aðgerð­ar­á­ætlun og kostn­að­ar­grein­ingu.

Félag háskóla­kvenna var stofnað 1928. Í fyrsta skipti í sögu félags­ins var efnt til vals á Háskóla­konu árs­ins árið 2017. Þá varð fyrir val­inu dr. Unnur Anna Valdi­mars­dóttir, pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands. Í annað sinn varð fyrir val­inu dr. Anna Þor­valds­dóttir, tón­skáld, en hún lauk BA gráðu í tón­smíðum frá Lista­há­skóla Íslands og meist­ara- og dokt­ors­gráðu í tón­smíðum frá Uni­versity of California í San Diego.

Í til­kynn­ingu frá Félagi háskóla­kvenna segir að til­gangur þess að velja Háskóla­konu árs­ins er að vekja athygli á fjöl­breyttum starfs­vett­vangi háskóla­kvenna, beina kast­ljós­inu að störfum þeirra og rann­sóknum og und­ir­strika fram­lag þeirra til sam­fé­lags­ins. Auk þess sem félagið vill fagna fram­gangi þeirra, áræðni og sér­stökum árangri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas