Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Albert býr á tveimur stöðum – „Best finnst mér að gefa gjafir sem eyðast“

Albert Eiríksson. Mynd úr einkasafni.
Albert Eiríks­son. Mynd úr einka­safni.

Matgæðingurinn, Albert Eiríksson, er neytandi vikunnar að þess sinni. Hann býr ásamt manni sínum Bergþóri Pálssyni á tveimur stöðum. Annars vegar á Ísafirði þar sem hann er aðstoðar­skólastjóri í Tónlistar­skóla Ísafjarða og hins vegar í Reykjavík þar sem hann heldur veislur heima hjá sér og tekur á móti fólki. Það hentar honum vel að flakka á milli staða. Einnig heldur hann úti  uppskrifta- og upplýsinga­vefnum  Albert eldar

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég hef verið að nýta mér töluvert tilboð í matvöru­búðum á seinni árum. Ég fer vel með hráefni frekar en að leggja ofuráherslu á sparnað. Nýti alla afganga vel og frysti. Einnig vil ég hafa matinn eins hreinan og mögulegt er og forðast unnar vörur. En ég passa ég líka upp á lifa og njóta því það það sem gefur lífinu gildi.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég kaupi mér ekki oft föt. En vil hafa þau vönduð þegar ég geri það og alls ekki „einnota “ en auðvitað kaupir maður sér eina og eina sumar­skyrtu svona með.  Ég missi mig alls ekki á útsölum, kannski af því að mér finnst ekkert gaman að fara í fatabúðir. Það er vandasamt að velja gjafir og þarf að hugsa það vel. Ég vel síður eitthvað sem fer upp í hillu eða vegg hjá fólki nema þá í samráði við maka. Best finnst mér að gefa gjafir sem eyðast. Hvort sem það er eitthvað matarkyns eða út að borða. Vínflaska er líka klassísk gjöf en hentar ekki fyrir alla. Ég met það í hvert og eitt skipti og vanda mig.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Ég man nú ekki eftir neinu sérstöku en ef ég er erlendis finnst mér mjög gaman að fara einu sinni fínt út að borða eða fara í afternoon tea  sem mér finnst alveg dásamlega skemmtilegt. En þetta er alveg spari, þá klæðum við okkur upp og förum fínt út.

Skiptir umhverfisvernd þig máli? Endurnýtir þú?

Já heilmiklu. Ég reyni að henda eins litlu og ég get. Er svona miðlungs í að endurnýta en hef tekið mig heilmikið á og get auðvitað gert miklu betur eins og flestir.  Hef komist að því að flokkun er ekki eins mikið mál og ég hélt í upphafi. Byrjaði smátt og hef síðan haldið áfram að bæta mig.

Einnig erum við í moltugerð, tökum allan lífrænan úrgang og búum til mold. Þetta er svona fjár­sjóður sem fór alveg fram hjá okkur. Það er heil­mikill lífrænn úrgangur sem kemur frá okkur og virkilega gefandi að stússast í þessu.

Ef við bregðum okkur af bæ í lengri tíma lækkum við alltaf hitann í híbýlum okkar og höfum gert það í fjölmörg ár. Eins er ég farin að hugsa meir um það að láta aldrei vatn renna að óþörfu. Og síðustu ár hefur það gerst. Er að verða meðvitaðri og meðvitaðri með árunum.

Ég ráðlegg fólki að njóta þess að vera til og ekki bíða eftir hlutunum. Bretta bara upp ermarnar og byrja. Við getum öll lagt ýmislegt til þess að líf okkar sé betra og skemmtilegra. Við erum ábyrg fyrir okkar eigin lífi og okkar heislu þarf af leiðandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim