Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Hættir í fússi á Útvarpi Sögu: „Hikar greinilega ekki við að nota rásina til að básúna út lygum“

Gústaf Adolf er hættur hjá útvarpi Sögu. Myndin er samsett
Gústaf Adolf er hættur hjá útvarpi Sögu. Myndin er sam­sett

Gústaf Adolf Skúlason er hættur hjá Útvarpi Sögu. Gústaf birti blogg­færslu þar sem hann rekur raunir sínar, halla­rekstur stöðv­ar­innar og fram­göngu útvarps­stjór­ans, Arn­þrúðar Karls­dóttur.

„Und­ir­rit­aður sem verið hefur við­loð­andi stöð­ina í um 15 ár og síð­ustu ár með tit­il­inn „frétta­maður í Svíþjóð“ gerði smá úttekt á inn­lendum fréttum um sögu félags­ins Útvarp Saga. Kom þá í ljós fjöld­inn allur af ein­stak­lingum sem hafa á einn eða annan hátt verið hraktir frá stöð­inni eða hrein­lega bolað út. Sum þeirra mála hafa endað í dóm­stólum og ekki alltaf í hag eig­enda stöðv­ar­innar,“ ritar Gústaf.

Hann segir jafn­framt í færsl­unni að Arn­þrúður hiki ekki við að nota útvarps­rás­ina til lyga og blekk­inga:

Und­ir­rit­aður heyrði væl útvarps­stjór­ans nýlega sem hikar greini­lega ekki við að nota rás­ina til að básúna út lygum um þá sem henni er illa við. Lýsti hún því yfir að hún væri kona og eig­andi Útvarp Sögu. Það voru þá nýjar fréttir. Hún lýsti und­ir­rit­uðum sem „vælandi karl­manni á facebooksíðum sem þyldi ekki að kven­maður væri yfir­maður sinn“ og lýsti því yfir að „við­kom­andi leyfði sér ýmis­legt gagn­vart konum sem ekki við­geng­ist gagn­vart körlum.“

Útvarp saga í dúndr­andi tapi
„Þegar árs­skýrslur Útvarps Sögu und­an­farin 3 ár eru skoð­aðar kemur í ljós að félagið er í dúndr­andi tap­rekstri. Tap félags­ins fyrir 2022 er 20.729.660 kr og fyrir ár 2021 var tapið 16.244.311 kr eða sam­tals krónur 36.973.971 kr,“ þá segir hann jafn­framt að Arn­þrúður sé eini hluta­fjár­eig­andi í félag­inu að and­virði hálfrar millj­ónar.

Hann sakar Arnþrúði um að banda frá sér góðu fólki sem er allt að vilja gert til að reyna að hjálpa stöð­inni og ritar:
„… ekki hægt að trúa lengur að allir aug­lýsendur séu vondir og öll vanda­mál stöðv­ar­innar séu vondu fólki að kenna. Eig­in­lega er hug­mynd stöðv­ar­innar að lífnæra sig á þeim sem vor­kenna stjórn­inni og borga henni pen­inga: „Vor­kennið mér og borgið fyrir það!“ eru hin eig­in­legu kjör­orð stöðv­ar­innar. Með skorti á til­lits­semi gæti ein­hver haldið því fram, að við­skipta­hug­mynd stöðv­ar­innar væri að selja út neyð ann­arra. Alla vega er stöðin ekki sú trygg­ing fyrir mál­frelsi sem heyr­ist í kjör­orð­inu: „Tölum á meðan aðrir þegja.“ Ekki mátti skrifa greinar um Covid um mán­að­ar­mótin, vegna þess „hversu margir af stuðn­ings­mönnum stöðv­ar­innar eru bólu­settir og fá útborgað þá.“ Fleiri dæmi finn­ast og bíða síð­ari tíma.“

Lesa á færslu Gústafar Adolfs hér í heild

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum