Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Finnur um úrslit kosninganna: „Þakklæti, vonbrigði og ótti“

Finnur Ricart Andrason, fyrr­ver­andi for­seti Ungra um­hverf­issinna, sem skip­aði fyrsta sæti á lista VG í Reykja­vík norð­ur, segir að sín fyrstu við­brögð – eftir að úrslit kosn­ing­anna voru ljós – séu „þakk­læti, von­brigði og ótti.“

Finnur Ricart Andrason.

Finnur þótti koma frá­bær­lega fyrir og standa sig með meira en sóma í mál­flutn­ingi, rök­stuðn­ingi og yfir­veg­aðri fram­komu; hann er ein­ungis 22 ára gam­all og er án efa einn allra efni­leg­asti stjórn­mála­maður Íslands, ef ekki sá efni­leg­asti.

Hann segir að þrátt fyrir von­brigði með útkom­una hjá VG að þessu sinni hafi það „verið algjör for­rétt­indi að fá að taka þátt í því að leiða kosn­inga­bar­áttu Vinstri grænna á und­an­förnum vikum. Ég er ótrú­lega þakk­látur fyrir traustið sem for­ysta sem og gras­rót flokks­ins hefur sýnt mér og fyrir stuðn­ing­inn sem ég hef fengið frá ykkur í þessu verk­efni. Fjöl­skyldan og kærastan mín hafa líka verið ómet­an­legir stuðn­ings­menn í gegnum þetta allt saman og núna tekur von­andi við rólegur des­em­ber­mán­uður þar sem sam­veru­skuldin verður end­ur­greidd með vöxtum.“

Finnur segir kosn­inga­bar­átt­una hafa reynt á hann að mjög mörgu leyti en segir að ferða­lagið hafi líka verið afar skemmti­legt og lær­dóms­ríkt og að hann sjái „ekki eftir neinu. Ég er stoltur af okkar heið­ar­legu bar­áttu og þakk­látur fyrir sam­vinn­una með öllu frá­bæra fólk­inu innan VG og þá góðu vini sem ég hef eign­ast. Það eru mikil von­brigði að við í VG og stefna flokks­ins skuli ekki hafa notið meiri stuðn­ings meðal kjós­enda í þetta skiptið. Ég vissi að það væri brekka en ég hafði trú á því að við myndum ná meiri árangri þegar ég steig inn í þetta verk­efni fyrir nokkrum vikum síðan. Við í VG settum okkar helstu áherslu­mál skýrt fram og við stöndum og föllum með þeim. Það er hluti af því að stunda heið­ar­leg stjórn­mál að mínu mati, að vera ekki að elt­ast enda­laust við skoð­anir almenn­ings heldur að berj­ast fyrir því sem maður trúir sjálfur á. Svo er bara mis­mikil eft­ir­spurn eftir því hverju sinni.“

Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Finnur segir að „þrátt fyrir að það sé erfitt að horfa upp á þessar nið­ur­stöður fyrir VG þá fagna ég því þó, sem vinstri­maður, að Sam­fylk­ingin skuli hafa sigrað þessar kosn­ingar og óska ég þeim til ham­ingju með mjög góðan árangur sem skilar þeim von­andi stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu.“

Hann bendir á að umhverf­is­málin hafi ekki verið hátt á lista hins almenna kjós­anda að þessu sinni og það er eitt­hvað sem hann ótt­ast og von­ast eftir að rödd nátt­úr­unnar heyr­ist meira í nán­ustu fram­tíð:

„Það sem ég ótt­ast við nið­ur­stöður þess­ara kosn­inga eru afleið­ingar þess að þeir tveir flokkar sem hafa sett umhverf­is­málin hvað mest í for­gang verði ekki lengur á þingi. Rödd nátt­úr­unnar virð­ist nán­ast kæfð og gæti skap­ast stórt tóma­rúm í þing­sal sem er nauð­syn­legt að hug­rakkir þing­menn fylli upp í.“

Dagur B. Egg­erts­son.

Finnur er segir að hann bindi „miklar vonir við Þórunni Svein­bjarn­ar­dóttur, Dag B. Egg­erts­son og Höllu Hrund Loga­dóttur þegar kemur að því að tala hátt og skýrt fyrir rót­tækum aðgerðum í lofts­lags­málum og öfl­ugri nátt­úru­vernd í fjar­veru Vinstri grænna og Pírata á kom­andi kjör­tíma­bili – en treysti líka á öfl­uga nátt­úru­vernd­ar­hreyf­ingu til að vera með sterkt aðhald.“

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir.

Að lokum færir Finnur í tal að „framundan er mik­il­væg og spenn­andi vinna hjá VG. Það þarf að vökva og efla gras­rót­ina sem hefur verið að stækka á ný, rýna í nið­ur­stöður kosn­ing­anna og fara vel yfir árangur og afleið­ingar stjórn­ar­sam­starfs und­an­far­inna ára. Þetta er stórt verk­efni sem ég skal tjá mig betur um síðar. Takk fyrir stuðn­ing­inn í þessu ævin­týri öll­sömul.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn