Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Snædís er nýr þjálfari kokkalandsliðsins: „Auðvitað stefnum við á gull“

Snædís Xyza Mae Ocampo
Snædís Xyza Mae Ocampo Mynd: Aðsend

Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður hefur verið valin þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur.

Snædís útskrif­að­ist sem mat­reiðslu­maður árið 2018 og hefur alla tíð verið tengd keppn­is­mat­reiðslu. Hún var fyr­ir­liði í lands­lið­inu sem fór á heims­meist­ara­mótið árið 2018 og var einnig fyr­ir­liði í lið­inu sem var í þriðja sæti á Ólymp­íu­leik­unum í Stutt­gart árið 2020. Snædís hefur tekið þátt í keppn­inni um kokk árs­ins og vann nýlega keppn­ina Nordic Challange sem haldin var á Akureyri.

Hóf Snædís nám sitt á Apó­tek­inu, þó áhug­inn hafi í raun vaknað þegar hún starf­aði á Sushi Samba. Náminu lauk hún svo á Hótel Sögu. Aðspurð sagð­ist Snædís þó ekki hafa gengið með kokk­inn í mag­anum og ætl­aði í raun aldrei að læra fagið en þegar sú ákvörðun var síðar tekin, stefndi hún jafn­hliða að því að vera ein að þeim bestu. Með það í huga varð hún fljót­lega einn af aðstoð­ar­mönnum lands­liðs­ins og síðar einn af aðstoð­ar­mönn­unum á Ólymp­íu­leiknum 2016.  Í dag starfar Snædís sem yfir­mat­reiðslu­maður á ION Hótel.

Þegar Snædís var spurð um mark­mið hennar þá sagð­ist hún vilja vera fyr­ir­mynd fyrir alla sem vinna með henni og von­ist til að þeim finn­ist þau geta sótt til hennar ráð bæði nú og í fram­tíð­inni. „Ein af mínum stolt­ustu stundum var þegar ég gekk upp á svið til að fá afhent brons verð­laun á Ólymp­íu­leik­unum 2020 komin fjóra mán­uði á leið. Ég á þá ósk að lands­liðs­fólkið okkar eigi eftir að upp­lifa þessa sömu til­finn­ingu og við ætlum okkar á pall 2024 og auð­vitað stefnum við á gull,“ sagði Snædís að lokum.Árangur á stór­mótum kemur ekki af sjálfu sér og kostar miklar fórnir frá lands­liðs­mönnum, fjöl­skyldu þeirra og öllum þeim sem að lið­inu koma, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu um ráðn­ing­una. Þar segir enn fremur að það að fylgj­ast með Snædísi vaxa frá aðstoð­ar­manni lands­liðs­ins upp í þátt­tak­anda liðs­ins og nú þjálf­ara sýnir okkur öllum hvað hægt er að gera með mik­illi vinnu, áræðni og ein­beit­ingu. „Við erum stolt af því að hafa Snædísi sem lands­liðs­þjálf­ara Kokka­lands­liðs­ins“, segir Þórir Erlings­son for­seti Klúbbs mat­reiðslu­meist­ara.„Við megum líka ekki gleyma bak­hjörlum og styrkt­ar­að­ilum liðs­ins en án þeirra væri ekki hægt að halda úti svona öfl­ugu liði. Und­an­farin ár hefur lands­liðið æft í hús­næði fag­fé­lag­ana á Stór­höfða og á Matvís miklar þakkir fyrir að veita þá aðstöðu,“ bætir Þórir við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas