Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Þorbjörn bjargaði 42 mönnum frá bráðum dauða

Áhöfnin á Jóni Baldvinssyni. Ljósmyndin er tekin í Grindavík.
Áhöfnin á Jóni Bald­vins­syni. Ljós­myndin er tekin í Grinda­vík. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Aðfara­nótt 31. mars árið 1955 vann Grindvíska björgunar­sveitin Þorbjörn fáheyrt afrek er hún bjargaði heilli áhöfn togarans Jóns Baldvins­sonar, alls 42 manns. Er um að ræða stærstu björgun áhafnar á vegum björgunar­sveitar Slysavarnar­félags Íslands í sögu félagsins. Jón Baldvinsson hafði strandað við Reykjanes á leið sinni vestur á Eldeyjar­banka, klyfjaður af saltfiski. Báturinn gjör­eyðilagðist en ekki einn maður beið bana.

Blaðið Fálkinn sagði svo frá strandinu:

Togarinn Jón Baldvinsson strandar við Reykjanes

Aðfara­nótt fimmtudagsins 31. mars strandaði togarinn Jón Baldvinsson við Reykjanes og gjör­eyðilagðist. Björgunar­sveit slysavarnar­deildarinnar „Þorbjörns“ í Grindavík bjargaði allri áhöfn skipsins, 42 mönnum. Með þessu er enn á ný höggvið skarð í hinn íslenska togara­flota á þessum vetri, þó að svo giftu­samlega tækist til, að manntjón yrði ekkert við skips­skaða þennan. Togarinn var að koma af Selvogs­banka með talsvert af saltfiski innanborðs og ætlaði að fara vestur á Eldeyjar­banka eða vestur undir Jökul. Nokkru fyrir klukkan fjögur um nóttina strandaði togarinn og sendi út neyðar­skeyti. Var björgunar­sveit Slysavarna­deildarinnar „Þorbjörns“ í Grindavík kvödd á vettvang, en á strand­staðinn er 10—15 kílómetra leið, sem víða er mjög seinfarin. Vita­vörðurinn á Reykjanesi, Sigurjón Ólafsson, hafði séð neyðar­blys frá skipinu, og varð liann fyrstur á strand­staðinn. Togarinn hafði siglt upp í brim­garðinn undir Hrafnkels­staða­bergi, rétt hjá litla vitanum á Reykjanesi, en skammt þar frá strandaði oliuskipið Clam, eins og mönnum er ennþá í fersku minni. Nokkru fyrir klukkan 7 um morguninn var björgunar­sveitin komin á strand­staðinn, og kl. 20 mín. fyrir 9 var búið að bjarga allri áhöfninni í land. Skip­stjórinn, Þórður Hjörleifsson, fór síðastur frá borði. Björgunar­starfið gekk mjög greiðlega og áfalla­laust, enda er sveitin skipuð vönum björgunar­mönnum. Formaður hennar er Tómas Þorvaldsson, en Sigurður Þorleifsson er formaður Slysavarna­deildarinnar „Þorbjörns“. Skipbrots­menn nutu hinnar bestu aðhlynningar hjá vitavarðar­hjónunum á Reykjanesi, og þegar til Grinda­víkur kom, bauð kven­félagið á staðnum öllum til hádegis­verðar. Að því búnu héldu skipbrots­mennirnir til Reykja­víkur. Þegar þetta er ritað, standa sjópróf enn yfir, svo að ekki er fullvíst um orsök slyssins.

Jón Bald­vins­son við strand­stað
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim