Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

RÚV sendi 18 manns til Liverpool: „Ríkisútvarpið er afar stolt af þátttökunni í keppninni í ár“

Diljá Pétursdóttir stóð sig með prýði í Eurovision 2023
Diljá Pét­urs­dóttir stóð sig með prýði í Eurovision 2023 Mynd: Trausti Hafsteinsson

Alls voru 18 manns á vegum Rík­is­út­varps­ins í Liverpool á ein­hverjum tíma­punkti. Keppnin kost­aði Rík­is­út­varpið um 33 millj­ónir króna.

Svar hefur borist frá Rík­is­út­varp­inu varð­andi fjölda þeirra sem var í sendi­nefnd Eurovision í Liverpool í síð­ustu viku. Var það Rúnar Freyr Gíslason, verk­efna­stjóri sjón­varps sem svar­aði spurn­ingum Mannlífs að beiðni Stefáns Eiríks­sonar, útvarps­stjóra. Svarið er sund­ur­liðað og ítar­legt. Þar kemur meðal ann­ars fram að sextán manns hafi farið til Liverpool á vegum RÚV en tveir til við­bótar hafi á ein­hverjum tíma­punkti verið í Liverpool, annar þeirra var Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri en honum var boðið ásamt öðrum útvarps­stjórum í Evrópu. Segir í lok svars­ins að áhug lands­manna á keppn­inni í ár hafi verið gríð­ar­legur en upp­safnað áhorf á úrslita­kvöldið var sam­kvæmt bráða­birgða­tölum um 74 pró­sent. Svarið má lesa í heild sinni hér að neðan.

„Sextán manns fóru á vegum RÚV til Liverpool til að vinna við Eurovision og aðra dag­skrá tengda keppn­inni. 

Kepp­endur fyrir Íslands hönd voru sex tals­ins: Söngkona, fjórar bak­raddir og höf­undur lags­ins.

Starfs­menn RÚV vegna atrið­is­ins sjálfs voru fjórir:  Pródúsent, leik­stjóri, förð­un­ar­fræð­ingur og stílisti.

Sex aðrir starfs­menn RÚV unnu að ýmsum störfum í Liverpool við hluti tengda keppn­inni beint og óbeint, m.a. vinnslu á dag­skrár­efni sem sent var hingað til lands eða um heim allan í gegnum sam­fé­lags­miðla: Far­ar­stjóri, fjöl­miðla­full­trúi, þulur, fram­leiðslu­stjóri, dag­skrár­gerðar- og frétta­maður og töku­maður- og klipp­ari.

Að auki var dag­skrár­stjóri RÚV við­staddur keppn­ina og einnig útvarps­stjóri sem var þarna í boði EBU ásamt öðrum útvarps­stjórum í Evrópu. Það voru því alls 18 manns á vegum RÚV í Liverpool á ein­hverjum tíma­punkti eftir þörfum. Þessi fjöldi er svip­aður og farið hefur á vegum RÚV í Eurovision síð­ustu ár.

Kostn­aður RÚV vegna Eurovision (keppn­is­þát­töku­kostn­aður, mark­aðs­kostn­aður, ferða­lög, laun, dag­pen­ingar og gist­ing) verður á um það bil 33 millj­ónum króna, sem er eins og áætlað var og sam­bæri­legt við s.l. ár með til­liti til verð- og launa­hækk­ana.

Gríð­ar­legur áhugi var meðal lands­manna á keppn­inni í ár en upp­safnað áhorf á úrslita­kvöldið var sam­kvæmt bráða­birgða­tölum um 74%. Upp­safnað áhorf á seinni und­an­úr­slita­kvöldið, þegar íslenska atriðið var flutt, mæld­ist 71%.

Rík­is­út­varpið er afar stolt af þátt­tök­unni í keppn­inni í ár og hefur þegar hafið und­ir­bún­ing að næstu Söngvakeppni þar sem íslenska fram­lagið fyrir Eurovision 2024 verður valið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas