Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Egill Þór er látinn

Egill Þór Jónsson, fyrrum borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lést að kvöldi föstu­dags­ins 20. des­em­ber, 34 ára að aldri. Var hann umkringdur fjöl­skyldu sinni og vinum en hann hafði síð­ustu ár barist hetju­lega við krabba­mein.

Egill Þór fædd­ist í Reykja­vík 26. júní árið 1990 og ólst upp í Breið­holti. Faðir hans var Jón Þór Trausta­son bif­reiða­smíða­meist­ari, fæddur 1960, lát­inn 2013 af slys­förum og móðir hans er Díana Særún Svein­björns­dóttir leik­skóla­liði, fædd 1961. Þau Linda Björk Jóns­dóttir og Aron Örn Jónsson eru systk­ini Egils Þórs.

Samkvæmt Mbl.is gekk Egill Þór i Hóla­brekku­skóla sem barn, stund­aði nám við Fjöl­brauta­skól­ann í Breið­holti og útskrif­að­ist þaðan árið 2011. Eftir fram­halds­skóla nam hann félags­fræði og fjöl­miðla­fræði við Háskóla Íslands og lauk BA-prófi í félags­fræði árið 2015.

Egill Þór helg­aði starfs­feril sinn fólki með geð­ræn vanda­mál og fatl­anir en hann var stuðn­ings­full­trúi í búsetu­kjarn­anum Rangár­seli frá 2015 til 2018 og teym­is­stjóri í Rangár­seli frá 2016. Þá sinnti hann mis­mun­andi störfum með nám­inu en hann var í bygg­ing­ar­vinnu árin 2006 til 2007, bréf­beri og í útkeyrslu hjá Íslands­pósti frá 2008 til 2014. Þá var hann yfir­mentor fyrir nýnema í félags- og mann­vís­inda­deild HÍ árin 2014 til 2015 og sum­arið 2015 sinnti hann trygg­inga­ráð­gjöf hjá Trygg­inga­vakt­inni. Þá má nefna að Egill Þór var for­maður Norm, félags félags­fræði­nema við HÍ 2013 til 2014, sat í Stúd­enta­ráði 2014 til 2016 og var í stjórn Stúd­enta­ráðs, for­maður Vöku 2015 til 2016.

Frá 2018 til 2022 var Egill Þór borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og vara­borg­ar­full­trúi frá 2022. Í því starfi sat hann í ýmsum nefndum borg­ar­stjórnar, þar á meðal í umhverfis- og heil­brigð­is­ráði, skóla- og frí­stunda­ráði, ferlinefnd fatl­aðs fólks, vel­ferð­ar­ráði og öld­unga­ráði.

Aukreitis var Egill Þór for­maður Varðar, full­trú­ar­árs sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Reykja­vík frá 2023 til 2024, var í stjórn Krafts, stuðn­ings­fé­lags ungs fólks með krabba­mein og aðstand­enda þeirra, 2020 til 2023. Þá má að lokum nefna að Egill Þór var virkur í starfi Oddfellowreglunnar.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Eg­ils Þórs er Inga María Hlíðar Thor­stein­son, f. 1991, hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur og ljós­móðir. Börn þeirra eru Sig­ur­dís, 3 ára, og Aron Trausti, 5 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn