Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Vilbergur strandaði á humarbáti við Eyrarbakka: „Svo rak okkur bara í gegnum brimið og upp í fjöru“

„Þegar við vorum þarna utar­lega í renn­unni finn ég bara að það kemur alda undir bát­inn. Og hún hendir okkur út og við lendum á skeri,“ segir Vil­bergur Magni Ósk­ars­son, sem lenti í háska þegar hann var stýri­maður á humar­bátnum Jóhanni Þor­kels­syni ÁR frá Eyr­ar­bakka. Segir hann frá strand­inu í nýjasta við­tali Reynis Trausta­sonar í hlað­varps­þætt­inum Sjóarinn.

„Það var ekk­ert slæmt veður en það var svo­lítið brim. Þetta var eldsnemma að morgni í byrjun júlí,“ segir Vil­bergur er hann rifjar málið upp. „Ég var búinn að taka landstímið og fer svo og hendi mér á bekk­inn í smá­stund. Svo kemur strákur, annar vél­stjór­inn þarna aftur í og kallar að við séum að vera komnir inn að beygju, það er að segja beygju að inn­sigl­ing­unni á höfn­inni á Eyr­ar­bakka. Stuttu síðar strand­aði bát­ur­inn.

„Ég fer þarna fram og bát­ur­inn er alveg kom­inn á hlið­ina.“ Vil­bergur sér að bát­ur­inn er kom­inn langt út fyrir inn­sigl­inga­merkj­unum. „Það ræðst ekki neitt við neitt, bát­ur­inn er bara strand­aður.“

Frétt Morg­un­blaðs­ins um strandið frá því í júní 1981.

Þegar þarna var komið við sögu þurfti skip­stjór­inn að taka ákvörðun um fram­haldið.

„Eftir smá umhugsun hjá skip­stjór­anum þá segir hann: „Við verðum bara að ná í bát­inn“, og átti þá við björg­un­ar­bát­inn,“ útskýrir Vil­bergur.

Skip­stjór­inn var mjög yfir­veg­aður og kall­aði í Vest­manna­eyja­radíó og bað um hjálp.

„Hann lét bara vita að við erum strand­aðir og þyrftum senni­lega að láta ná í okkur. Það braut svo­lítið á okkur og við vildum ekk­ert vera að bíða. Svo við fórum, ég og vél­stjór­inn upp á stýri­húss­þak að ná í björg­un­ar­bát­inn. Eins og var á þeim tíma var bát­ur­inn kyrfi­lega bund­inn ofan í tré­kistu þar. Eftir smá barn­ing náðum við að losa hann og henda honum í sjó­inn og blása hann upp. Svo komum við okkur í bát­inn, það var ekki eftir neinu að bíða. Það var hel­vítis brim en við lok­uðum bara tjald­inu á bátnum og svo rak okkur bara í gegnum brimið og upp í fjöru.“

Þegar Vil­bergur og félagar hans fundu að þeir voru komnir í land fóru þeir úr bátnum en þá mæta þeir strákum sem koma hlaup­andi til þeirra en þeir höfðu komið þarna kvöldið áður og voru að fara að landa. Þeir spurðu skip­brots­menn­ina um afla­brögð.

„Það fyrsta sem þeir segja er „Jæja strákar, eruð þið að fá hann?“,“ sagði Vil­bergur og hló.

En þó að allir hafi sloppið heilir frá skips­brot­inu hafði það áhrif á suma skip­verj­anna til fram­búðar.

„Menn voru mis­hvekktir eins og gengur þegar menn lenda í svona. Það voru ein­hverjir þarna sem voru með mér sem voru ekki alveg sáttir við þetta og voru lengi að jafna sig.“ Sumir hættu á sjó eftir þetta.

Seinni hluti við­tals­ins við Vilberg birt­ist næst­kom­andi mið­viku­dag. Smelltu hér til að sjá fyrri hluta þátt­ar­ins í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sjóarinn

48:09
InnlentSjóarinn

Unnar Gísli heldur alltaf í trúna: „Þú ert trú­laus stuttan tíma í sjónum“

Júníus Meyvant er tón­list­ar­maður sem flestir þekkja. Færri vita að hann heitir Unnar Gísli Sig­ur­munds­son og er bor­inn og barn­fæddur í Vest­manna­eyjum. Hann á að baki stuttan en magn­aðan sjó­manns­feril á tog­ar­anum Breka VE. Seinna lærði hann á gítar og hefur nú náð frægð víða um heim. Frægðin stígur honum ekki til höf­uðs. Hann býr ásamt eig­in­konu og börnum í...
48:09
InnlentSjóarinn

Fyrsta sjó­ferð Unnars Gísla mis­heppn­að­ist illa: „Það er bara reykur út um allt“

Júníus Meyvant er tón­list­ar­maður sem flestir þekkja. Færri vita að hann heitir Unnar Gísli Sig­ur­munds­son og er bor­inn og barn­fæddur í Vest­manna­eyjum. Hann á að baki stuttan en magn­aðan sjó­manns­feril á tog­ar­anum Breka VE. Seinna lærði hann á gítar og hefur nú náð frægð víða um heim. Frægðin stígur honum ekki til höf­uðs. Hann býr ásamt eig­in­konu og börnum í...
48:09
MenningSjóarinn

Unnar Gísli útskýrir sviðsnafnið: „Mér fannst Júníus vera svo lúðra­legt nafn“

Júníus Meyvant er tón­list­ar­maður sem flestir þekkja. Færri vita að hann heitir Unnar Gísli Sig­ur­munds­son og er bor­inn og barn­fæddur í Vest­manna­eyjum. Hann á að baki stuttan en magn­aðan sjó­manns­feril á tog­ar­anum Breka VE. Seinna lærði hann á gítar og hefur nú náð frægð víða um heim. Frægðin stígur honum ekki til höf­uðs. Hann býr ásamt eig­in­konu og börnum í...
34:48
InnlentSjóarinn

Steinunn og Egill inn­sigl­uðu sam­bandið á sigl­ingu: „Ákváðum að nú væri tími til að byrja saman“

Steinunn Ein­ars­dóttir er nýjasti gestur Reynis Trausta­sonar í hlað­varps­þætt­inum Sjóarinn. Steinunn var sjó­maður um ára­bil á báti for­eldra sinna. Steinunn hætti á sjó eftir að hún eign­að­ist seinni son sin, árið 2015, eftir að hafa verið á sjó í 12 ár. Hún segir Reyni frá því hvernig hún og eig­in­maður hennar, skip­stjór­inn Egill Ólafsson, inn­sigl­uðu sam­band sitt. „Hann er skip­stjóra­mennt­aður...
34:48
MenningSjóarinn

Útgerð for­eldra Stein­unnar lauk þegar snjó­flóð féll á höfn­ina: „Ég er stoltur Flat­eyr­ingur“

Steinunn Ein­ars­dóttir er nýjasti gestur Reynis Trausta­sonar í hlað­varps­þætt­inum Sjóarinn. Steinunn var sjó­maður um ára­bil á báti for­eldra sinna. Áralöng útgerð­ar­saga for­eldra Stein­unnar, Guðrúnar Páls­dóttir og Einars Guð­bjarts­sonar, end­aði snögg­lega er snjó­flóð féll á smá­báta­höfn­ina á Flateyri árið 2020. Aðeins stóð einn bátur eftir af flota Flat­eyr­inga. „Þetta var rosa­legt sjokk,“ segir Steinunn við Reyni þegar hann spyr hana út...
43:35
InnlentSjóarinn

Kristján missti allt í Hruninu: „Þegar maður vakn­aði var allt farið“

Kristján Berg Ásgeirs­son, eða Fiski­kóng­ur­inn eins og hann er gjarnan kall­aður og eig­andi Heitra potta, hefur verið þekkt­asti fisk­sali á Íslandi um ára­bil en hann hefur selt Íslend­ingum fisk í yfir þrjá­tíu ár. Frum­legar aug­lýs­ingar hans hafa gjarna vakið athygli og þá hefur hann oftar en ekki ratað í fjöl­miðla vegna hinna ýmissa mála. Kristján Berg er nokkuð hisp­urs­laus á...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto