Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Jón Þröstur mögulega myrtur af leigumorðingja sem fór mannavillt

Talið er mögu­legt að leigu­morð­ingi hafi ætlað að myrða ann­an Íslend­ing sem heim­sótti Írland á sama tíma og Jón Þröstur, en þetta kem­ur fram í um­fjöll­un Irish Times um málið

Mál Jóns Þrastar hefur vakið mikla athygli
Mál Jóns Þrastar hefur vakið mikla athygli Rann­sóknin er í fullum gangi. Mynd: Aðsend

Fjöl­skylda Jóns Þrast­ar Jóns­son­ar tel­ur ekki óhugs­an­di að hann hafi verið myrt­ur af leigu­morð­ingja í Dublin á Írlandi fyr­ir mis­tök.

Í um­fjöll­un The Irish Times segir að lög­reglu­menn frá Írlandi séu vænt­an­leg­ir til Íslands í tengsl­um við rann­sókn­ina á hvarfi Jóns Þrast­ar en síð­ast er vitað um ferðir hans í Dublin í fe­brú­ar fyrir sex árum.

Í til­kynn­ingu frá ís­lensku lög­regl­unni kemur fram að sam­þykkt rétt­ar­beiðni liggi fyr­ir. Til standi að taka skýrsl­ur af tæp­lega fjöru­tíu manns vegna máls­ins.

Eins og margoft hefur komið fram þá hvarf Jón Þröst­ur spor­laust í heim­sókn sinni til Dublin, en þangað fór hann til að taka þátt í póker­móti.

Ljóst er að írska lög­regl­an hef­ur sett þunga í rann­sókn­ina og hafa meðal ann­ars verið fram­kvæmd­ar fjór­ar leit­ir í Dublin á und­an­förnum mán­uðum með aðstoð spor­hunda.

Í um­fjöll­un The Irish Times er sagt að írska lög­regl­an telji að hér á landi sé að finna fólk er kunni að hafa vitn­eskju um hvarf Jóns Þrast­ar, en vilji mögu­lega eigi ræða við lög­regl­una á Íslandi og von­ast írska lög­regl­an til að fólkið sé til­búið að ræða við írska lög­reglu­menn.

Írsk­ir sem og ís­lensk­ir lög­reglu­menn hitt­ust ný­verið í í Haag í Hollandi. Mótuðu þá stefnu er varðar auk­inn þunga í rann­sókn­ina.

Jón Þröst­ur fór fót­gang­andi frá hót­el­inu er hann dvaldi á; náð­ust mynd­ir af honum í ör­ygg­is­mynda­vél nálægt inn­gangi hjúkr­un­ar­heim­il­is við hlið hót­els­ins.

Hef­ur írska lög­regl­an ekki frek­ari upp­lýs­ing­ar um af­drif hans og þá hafa eng­in um­merki um hann fund­ist í langan tíma.

Jón Þröstur hafði aldrei áður komið til Írlands; átti þar enga vini eða fjöl­skyldu, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un The Irish Times.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas