Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Kraftmikil Kristrún komin á kreik: „Það hefur ekkert skilað sér til neytenda!“

Kristrún Frostadóttir.
Kristrún Frosta­dóttir.

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar, Kristrún Frosta­dóttir, telur að fákeppn­is­mark­aði eins og Ísland verði að reglu­væða:

„Ástæðan fyrir því að ég og fleiri höfum talað fyrir því og fleiri að við höldum að minnsta kosti Lands­bank­anum í opin­berri eigu er að við séum þá með einn banka sem er með opin­bert við­mið um eðli­lega arð­semi, eðli­leg kostn­að­ar­hlut­föll,“ en þetta kemur fram á Vísi.

Kristrún for­maður mætti í Bítið á Bylgj­unni í morgun, hennar fyrsta opin­bera við­tal eftir fæð­ing­ar­or­lof. Kristrún sagð­ist eigi hafa verið í fríi; hún hafi ein­fald­lega verið að sinna flokknum inn á við; haldið fjöl­miðlum fjarri.

Sam­fylk­ingin er orð­inn stærsti stjórn­mála­flokk­ur­lands­ins; mælist með rúm­lega 28 pró­senta fylgi, sam­kvæmt þjóð­ar­púlsi Gallup.

Undir styrkri stjórn Kristrúnat eykur Sam­fylk­ingin enn for­skotið á Sjálf­stæð­is­flokk­inn; stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hefur sjaldan eða aldrei verið minni; mælist nú 38 pró­sent.

„Þetta eru auð­vitað skila­boð til okkar um að við verðum að standa okkur, svona fylgi fylgja vænt­ingar. Vonandi jákvæðar vænt­ingar fremur en að þetta sé óánægju­fylgi.“

Staðan varð­andi verð­bólg­una er áhyggju­efni:

„Ef við tökum bara stöð­una eins og hún blasti við í upp­hafi síð­asta árs þá voru strax komin fram merki um að það stefndi í mikla verð­bólgu. Ég veit að fólk er ekk­ert að fylgj­ast með því í smá­at­riðum hvað ein­staka þing­menn eru að gera, en stór partur af þeim mál­flutn­ingi sem ég og við í Sam­fylk­ing­unni vorum með sneri að því að grípa í taumana áður en verð­bólgan færi úr bönd­unum. Það hefði þurft að bregð­ast við með því að reyna að dempa höggið sem almenn heim­ili fá sem hefði þá mögu­lega dregið úr launa­þrýst­ingi og almennum verð­kostn­aði inn­an­lands.“

Kristrún nefnir að ríkið hefði þurft að setja enn meira í barna­bætur og hús­næð­is­bætur sem og vaxta­bætur:

„Slíka til­færslu á kostn­aði er auð­veld­ara að festa við ákveðna hópa en launa­hækk­anir. Þær eiga það til að frétt­ast; ég fékk sjö pró­sent og þá vilt þú fá sjö pró­sent og svo fram­vegis.“

Hún bendir á að með þeim hætti væri hægt að styðja enn betur við þá hópa er þurfa mest á því að halda; segir að rík­is­stjórnin hafi brugð­ist alltof seint og mjög illa við fyr­ir­sjá­an­legum vanda; grípa hefði þurft til hval­reka­skatta til fjár­mögn­unar útgjöld rík­is­sjóðs.

Á erf­iðum tímum sem þessum þurfi að gera slíkt:

„Og fjár­magns­skattar og það sé ein­fald­lega tekið á þensl­unni þar sem þenslan er. Til dæmis banka­skatt­ur­inn sem var afnum­inn að hluta á sínum tíma – það átti að skila sér allt til neyt­enda. Það hefur ekk­ert skilað sér til neyt­enda!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto