Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Lögmaður sakaður um nauðgun á eiginkonu skjólstæðings síns – Einsdæmi í íslenskri réttarsögu

Hólmsheiði
Hólms­heiði

Íslenskur lög­maður hefur verið kærður til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir nauðgun og önnur kyn­ferð­is­brot gegn eig­in­konu skjól­stæð­ings síns. Lög­mað­ur­inn er með mál­flutn­ings­rétt­indi fyrir Lands­rétti.

Fram kemur í frétt Vísis um málið að meint brot lög­manns­ins séu sögð hafa gerst á meðan skjól­stæð­ingur hans sat í ein­angrun í fang­els­inu á Hólms­heiði.

Lög­reglan er komin langt á leið með rann­sókn­ina en konan og lög­mað­ur­inn hafa bæði gefið skýrslu. Vegna lög­manns­starfa manns­ins er málið í flýti­með­ferð, sam­kvæmt heim­ildum Vísis.

Tvö af meintum brotum sem eru til rann­sóknar, en þau eru nokkur, eru rann­sökuð sem nauðg­un­ar­brot en fyrsta meinta brotið ku hafa átt sér stað inni á geð­deild Lands­spít­al­ans en þar var konan lögð inn stuttu eftir gæslu­varð­halds­úr­skurð eig­in­manns hennar.

Kemur fram í frétt Vísis að málið eigi sér enga hlið­stæðu í íslenskri rétt­ar­sögu en auk meintra nauðg­un­ar­brota til stendur að kæra lög­mann­inn til rík­is­lög­reglu­stjóra og er hann sak­aður um að hafa brotið illa á mann­rétt­indum skjól­stæð­ings síns.

Samkvæmt kærunni, sem Vísir hefur undir höndum, er lög­mann­inum gefið að sök að hafa í starfi sínu sem verj­andi manns­ins gefið vís­vit­andi rangar upp­lýs­ingar og neytt hann til að veita mót­þróa við skýrslu­töku „allt í þeim til­gangi að skipu­leggja kyn­ferð­is­brot gagn­vart eig­in­konu“ hans. Sætti mað­ur­inn gæslu­varð­haldi í tutt­ugu og tvo daga.

Er lög­mað­ur­inn svo sagður hafa mis­notað aðstöðu sína á grófan hátt gagn­vart eig­in­kon­unni með því að nýta sér aðstöðu hennar og and­leg veik­indi til þess að hafa við hana sam­farir. Í skýrslu­töku hjá lög­reglu við­ur­kenndi hann að hafa haft sam­farir við kon­una „fimm til tíu sinnum“ en neitar því stað­fast­lega að hafa nauðgað henni.

Þrátt fyrir það rann­sakar lög­reglan málið sem brot á 2. máls­gein 194. greinar almennra hegn­ing­ar­laga en þar telst það einnig nauðgun og varðar sömu refs­ingu og mælt er fyrir um í 1. máls­grein að beita blekk­ingum eða not­færa sér villu við­kom­andi um aðstæður, eða að not­færa sér geð­sjúk­dóm eða aðra and­lega fötlun manns til að hafa við hann sam­ræði eða önnur kyn­ferð­is­mök.

Kemur fram í frétt Vísis að fjöl­mið­ill­inn hafi fjöldi gagna undir höndum sem styðja frá­sögn kon­unnar. Þar á meðal vott­orð sál­fræð­ings frá Áfalla- og sál­fræði­m­ið­stöð­inni, auk vott­orð frá Stíga­móta þar sem kemur fram að konan hafi sótt ráð­gjöf og að hún hafi lýst því að „hún sé að fást við fjöl­margar og alvar­legar afleið­ingar sem eru algengar eftir kyn­ferð­is­of­beldi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto