Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Kallar Davíð lítinn karl: „Lumar ekki Davíð á fimmaurabrandara um þá staðreynd?“

Davíð Oddsson
Davíð Oddsson Mynd: Facebook

Ólafur Arnarsson hagfræðingur og fyrrum blaða­maður Frétta­blaðsins sáluga rífur Davíð Oddsson ritstjóra Morgun­blaðsins í sig í pistli á Hringbraut. Pistilinn kallar hann „Lítill karl getur ekki leynt þórðar­gleði sinni“.

Pistillinn birtist á dögunum en þá hafði starfsemi Frétta­blaðsins verið stöðvuð og þannig um 70 manns misst vinnuna. Segir Ólafur að Davíð Oddsson hafi á árum áður verið þekktur fyrir húmor en nú sé öldin önnur, bókstaf­lega. Nú hafi kímnigáfa Davíðs að mestu komið fram í „æ þynnri fimmaura­bröndurum“. Greinilegt er á pistlinum að Ólafi er ekki hlátur í huga.

Segir hann að á meðan aðrir fjöl­miðlar hafi talað um áfall vegna endaloka Frétta­blaðsins, hafi Davíð ekki getað ráðið við sig af kæti og það hafi sést í Reykja­víkurblaði Morgun­blaðsins.

„Senn kemur röðin að Morgun­blaðinu sem þó lifir lengst og lifir enn vegna þess að íslenskir ríkis­bankar hafa tvívegis fellt niður margra milljarða skuldir þess. Ekki einu sinni heldur tvisvar. Á núverandi verðlagi nema þessar niður­fellingar meira en tíu milljörðum króna,“ segir Ólafur í pistli sínum. Þá bendir hann að lokum á hrap á upplagi Morgun­blaðsins sem er komið niður í 11.000 eintök en var um 55.000 um síðustu aldarmót. „Lumar ekki Davíð á fimmaura­brandara um þá staðreynd?“ spyr Ólafur að lokum.

Færsluna má lesa í heild sinni hér að neðan:

Hin síðari ár hefur svokölluð kímnigáfa Davíðs Oddssonar mest komið fram í æ þynnri fimmaura­bröndurum.

Á síðustu öld var hann stundum þekktur fyrir húmor og átti alveg góða spretti. Svo virðist hins vegar sem sá eigin­leiki hafi ekki fylgt honum inn í 21. öldina, ekki frekar en margt annað sem sat eftir við aldamótin.

Í Reykja­víkurbréfi Morgun­blaðsins nú um helgina reynir öldungurinn að slá um sig með næfur­þunnum fimmaura­brandara þegar hlakkar í honum vegna þess að 70 manns misstu vinnuna á föstu­daginn.

Allir íslenskir fjöl­miðlar hafa tjáð sig um endalok Frétta­blaðsins og telja þau áfall fyrir lýðræðið og tjáningar­frelsið í landinu. Davíð ræður sér hins vegar ekki fyrir kæti og virðist gera sér vonir um að við þetta vænkist hagur Morgun­blaðsins eitthvað. Þar er hann enn í dagvistun, alla vega hluta úr degi.

Pappírs­fjölmiðlar í heiminum, og ekki síður á Íslandi, eru deyjandi eins og örlög Frétta­blaðsins sýna. Blaðið bætist þá við meira en tíu önnur blöð sem farið hafa sömu leið. Senn kemur röðin að Morgun­blaðinu sem þó lifir lengst og lifir enn vegna þess að íslenskir ríkis­bankar hafa tvívegis fellt niður margra milljarða skuldir þess. Ekki einu sinni heldur tvisvar. Á núverandi verðlagi nema þessar niður­fellingar meira en tíu milljörðum króna.

Önnur blöð á Íslandi hafa ekki notið þeirrar þjónustu ríkis­bankanna að fá milljarða á milljarða ofan af skuldum við þá fellda niður. Einhverjir myndu kalla þessar niður­fellingar ríkis­banka veglegan ríkis­stuðning.

Um síðustu aldamót var Morgun­blaðið selt í 55.500 eintökum, samkvæmt stað­festum upplýsingum frá Verslunar­ráði Íslands á þeim tíma.

Þegar Frétta­blaðið kom til sögunnar hrundi upplag Moggans jafnt og þétt – þó aldrei eins mikið og þegar Davíð Oddsson var tekinn þar inn. Þá fuku 10.000 áskrifendur út um gluggann á nokkrum dögum. Nú er upplag blaðsins komið niður í ellefu þúsund eintök.

Lumar ekki Davíð á fimmaura­brandara um þá staðreynd?

– Ólafur Arnarson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim