Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Bragi Valdimar lætur auglýsendur heyra það: „Þið megið gjarnan hysja upp um ykkur ígerð nærhöldin“

Bragi Valdimar Skúlason Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir
Bragi Valdimar Skúlason Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Bragi Valdimar Skúlason lætur aug­lýsendur heyra það í nýrri Facebook-færslu.

Baggalút­ur­inn, sjón­varps­mað­ur­inn og íslensku­sjéníið Bragi Valdimar Skúlason lætur aldeilis gamm­inn geisa í nýrri Facebook færslu þar sem hann agn­ú­ast út í ensku­slettur í aug­lýs­ingum fyrir kom­andi bik­svartan föstu­dag og þakka­gjörð­ar­há­tíð­ina. Fyrr í mán­uð­inum hafði hann einnig gagn­rýnt „sing­les day“ mark­aðs­setn­ing­una harð­lega.

Sjá einnig: Bragi Valdimar ósáttur: „Megið troða „sing­les day“ þétt­ings­fast upp í greiðslu­gátt­irnar á ykkur“

„Góðu góss­mang­arar og gling­urprang­arar. Ég veit að ég var agn­ar­pínu leið­in­legur við ykkur um dag­inn þegar ein­hleyp­inga­dellan ykkar tröll­reið hér öllu í pos­arauf­arnar. Jafnvel svo að ég ætl­aði að halda aftur að mér þó ein­hverjir söluglaðir vinir og vin­konur rugl­uð­ust örlítið á föstu­deg­inum svarta og slepptu fáeinum blakk­frædeyjum lausum í stífluð nið­ur­föll með­al­kaup­mennsk­unnar.“ Þannig hefst færsla Braga Valdi­mars sem vakið hefur verð­skuld­aða athygli frá því að hún birt­ist í gær­kvöldi en færsl­unni hefur verið deilt yfir 170 sinnum og á átta hund­rað manns hefur líkað við hana.

Baggalút­ur­inn orð­heppni snýr því næst orðum sínum að þakk­ar­gjörð­ar­há­tíð­inni sem aug­lýsendur sumir hafa dirfst til að kalla thanks­gi­v­ing. Gefum Braga Valdimar orðið:

„En… að þið skulið svo í blek­föstu­æð­inu miðju afhöfða skömm­ina end­an­lega og fimb­ul­fruss­ast til að tala um „thanks­gi­v­ing“–veislur eins og ekk­ert sé sjálf­sagð­ara er alger­lega ofar mínum tak­mark­aða mál­skiln­ingi. Að þið skulið ekki einu sinni nenna að klína hinu ágæta orði „þakk­ar­gjörð“ inn í ykkar kámugu sölupésa og síbylj­andi trylli­boð ber vott um svo átak­an­legt metn­að­ar­leysi að ég efast hrein­lega um að þið séuð með mark­aðs­legri með­vit­und. Þið megið því gjarnan hysja upp um ykkur ígerð nær­höldin og allra­vin­sam­leg­ast taka þessa ítroðnu oföldu hænsn­fugla ykkar ásamt mauksoðnu með­læt­inu og éta þar sem úti frýs.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn