Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Neytendastofa bannar villandi auglýsingu um húðvöru

Neytenda­stofa hefur bannað auglýsingar frá fyrir­tækinu Törutrix ehf. þar sem fullyrt er meðal annars að húðvaran Golden Goddess andlits serum „vinni gegn bólum, roða, þrota og óþægindum í húð“. Einnig er fullyrt að húðvaran minnki dökka bletti í húð og dragi úr „hrukku­línum.“

Neytenda­stofu barst ábending í haust vegna full­yrðinga fyrir­tækisins Törutrix ehf. um virkni húðvöru á þeirra vegum. Um var að ræða full­yrðingar í auglýsingum á vörunni Golden Goddess andlits serum.

Í auglýsingum á samfélags­miðlum var húðvaran látin hljóma sem undrakrem með full­yrðingu sem hljómar svona: „Fullt af góðum náttúru­legum efnum. Gefur húðinni raka og næringu. Vinnur gegn bólum, roða, þrota og óþægindum í húð. Heldur húðinni ferskri, minnkar fínar hrukku­línur og styrkir húðina. Hreins­andi eigin­leikar, minnkar svita­holur og endur­nýjar húðina. 24karata gullagnir sem gefur húðinni ljóma. Lagar roða. Minnkar dökka bletti í húð.“

Neytenda­stofa óskaði þá eftir að eigandi fyrir­tækisins sýndi fram á að full­yrðingarnar væru réttar en fékk ekki svar. Eftir ítrekun barst Neytenda­stofu þá bréf frá Törutrix ehf. þar sem fram komu upplýsingar um öryggis­atriði vörunnar frá fram­leiðanda í Kína. En það dugði ekki til og þóttu þær upplýsingar ekki sanna að full­yrðingarnar um virkni undra­kremsins væru sannar

Neytenda­stofa komst að þeirri niður­stöðu að full­yrðingar um að vöruna væru ósannaðar og veittu rangar upplýsingar um helstu einkenni vörunnar. Þá bannaði Neytenda­stofa auglýsingu og fyrir­tækinu var gert að fjarlægja þær auglýsingar sem innihalda umrædda full­yrðingu af samfélags­miðlum. Þetta kemur fram á vef Neytenda­stofu.

Ákvörðun Neytenda­stofu má lesa hérna í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim