Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Baldur segir Grænlandsmálið komið á „nýtt og enn alvarlegra stig“

„Þetta er alvar­legri og form­legri hótun heldur en komið hefur fram áður”

Trump og Mette Frederiksen
Trump og Mette Frederik­sen Pró­fess­or­inn segir fram­tíð NATÓ í hættu Mynd: AFP

Baldur Þór­halls­son stjórn­mála­pró­fessor segir ágirnd Banda­ríkj­anna á Græn­landi vera komið á nýtt og enn alvar­legra stig en áður.

Baldur skrif­aði færslu á Facebook í morgun í kjöl­far form­legrar yfir­lýs­ingar Hvíta húss­ins um Grænland. Færslan hefst á eft­ir­far­andi máta:

„Formleg yfir­lýs­ing Hvíta húss­ins um Grænland færir málið á nýtt og enn alvar­legra stig.

Þetta er alvar­legri og form­legri hótun heldur en komið hefur fram áður.

Yfir­lýs­ingin er svohljóð­andi á frum­mál­inu:

,,Pres­ident Trump has made it well known that acquiring Greenland is a national security pri­ority of the United States, and it’s vital to deter our advers­aries in the Arctic reg­ion. The Pres­ident and his team are discussing a range of options to pursue this import­ant for­eign policy goal, and of course, utilizing the US Military is always an option at the Commander in Chief’s dispo­sal“.”

Stjórn­mála­pró­fess­or­inn nefnir fimm atriði í sam­hengi við yfir­lýs­ing­una:

„Fimm atriði í þessu sam­hengi:

Það eitt að for­seta­skrif­stofan lýsi því form­lega yfir að hún sé að kanna leiðir til að koma Græn­landi undir yfir­ráð Banda­ríkj­anna veikir NATO og fæl­ing­ar­mátt þess. En ríki NATO - þar með talið Danmörk - sæta stöð­ugum fjöl­þátta árásum frá Rúss­landi.

Það að for­seta­skrif­stofan segi form­lega að beit­ing banda­ríska hers­ins gegn öðru NATO ríki sé mögu­leiki í þessu sam­hengi er enn alvar­legra. Framtíð NATO er í húfi.

Óform­legt tal banda­ríska utan­rík­is­ráð­herr­ans bak við luktar dyr að Banda­ríkin muni ekki beita her­valdi til að ná völdum á Græn­landi hefur engan veg­inn sama vægi og form­leg yfir­lýs­ing for­seta­skrif­stof­unnar.

Skásti leikur Græn­lend­inga og Dana í stöð­unni er að tryggja áfram stuðn­ing stóru banda­lags­ríkja sinna í Evrópu. Þau þurfa að beita diplómat­ískum leiðum til að reyna að fá banda­rísk stjórn­völd ofan af áformum sínum.“

Síðasta atriðið sem Baldur nefnir snýr að rifr­ildum danskra ráða­manna við Banda­ríkja­for­seta, sem hann segir þá ekki geta unnið.

„Danskir ráða­menn ættu auk þessa að hætta að munn­höggvast við Trump í fjöl­miðlum. Þeir vinna ekki þann slag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas