Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Vendingar á vinstri vængnum

Séra Davíð Þór Jónsson
Séra Davíð Þór Jónsson Mögulega að taka slag­inn af krafti í stjórn­mál­unum

Séra Davíð Þór Jónsson er tal­inn lík­legur til að leiða stjórn­mála­flokk á vinstri vængnum eftir því sem heim­ildir Mannlífs herma.

Er talið lík­legt að hug­myndin hafi sprottið upp eftir að sundr­ung í Sós­í­alista­flokknum kom upp, og þá var fylg­is­hrun Vinstri grænna og Pírata sem vatn á myllu þeirra sem vilja sam­ein­ingu vinstri flokk­anna undir öðru heiti.

Hvort Gunnar Smári Egilsson standi á bak­við Davíð Þór er enn óljóst en margt sem bendir til þess.

Nú um stundir er Davíð Þór í fríi á Spáni með fjöl­skyldu sinni og vildi ekk­ert tjá sig um stöð­una.

Davíð Þór var á meðal þeirra er lýst hafa yfir óánægju með gang mála hjá Sós­í­alista­flokknum en hann var sjálfur í fyrsta sæti á fram­boðs­lista flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í alþing­is­kosn­ing­unum í nóv­em­ber síð­ast­liðnum.

Hann sagði eftir allt rótið hjá Sós­í­alistum að „það sem kom fyrir var að ákveðnir ein­stak­lingar höfðu gert tossa­lista yfir það hvernig ætti að kjósa. Allar kosn­ingar fóru upp á punkt og prik eftir þessum tossa­lista og það var nátt­úru­lega til höf­uðs ákveðnum ein­stak­lingi skulum við segja“ sagði Davíð Þór á sínum tíma og stað­festi að umræddi mað­ur­inn væri „Gunnar Smári.“

Sagði Davíð Þór einnig að „hann [Gunnar Smári Egilsson, inn­skot blm] náði ekki kjöri, og ein­stak­lingar sem höfðu starfað of náið með honum náðu ekki kjöri, þrátt fyrir að það séu ein­stak­lingar sem flokk­ur­inn á líf sitt að launa. Þau guldu þess að vera ekki í ónáð hjá Gunnari Smára.“

Davíð Þór sagð­ist ekki vita „hvernig þetta fólk ætlar að fara reka þennan flokk eftir að hafa hafnað ein­stak­lingum sem hann stendur í svona mik­illi þakk­ar­skuld við.“

Hann sagði líka að „það verða eft­ir­málar af þessum skrípa­leik sem ung­liða­hreyf­ingin bauð upp á undir yfir­skrift lýð­ræðis. En það mun koma í ljós hver þau verða.“

Þótt Davíð Þór baði sig á ylvolgum ströndum Spánar þar sem glampar sól­ar­innar gefa ákveðnum lit­brigðum lífs­ins mögu­lega meiri snerpu segir hann þó sjálfur að hann liggi undir feldi og þurfi að hugsa sinn gang.

Fari svo að Davíð Þór og Gunnar Smári stofni stjórn­mála­flokk saman er ljóst að sá flokkur verður hávær, umdeildur og hug­mynda­ríkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Slúður