Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Tómas er ósáttur í Árborg: „Sami maður og fékk persónulegan fjárstuðning frá ónefndum aðila“

Tómas Ellert Tómasson.
Tómas Ellert Tómasson.

„Árborg aug­lýsir nú til sölu bygg­ing­ar­rétt fyrir íbúð­ar­hús­næði á 3.000 m2 lóð við hlið­ina á Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­lands á Selfossi, Tryggva­götu 36. Mjög dýr­mætri lóð í huga margra Sel­fyss­inga sem hafa séð hana fyrir sér sem fram­tíð­ar­lóð fyrir heima­vist FSu“ skrifar Tómas Ellert Tómasson, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins í Sveit­ar­fé­lag­inu Árborg.

Hann bætir því við að í „aug­lýs­ingu sveit­ar­fé­lags­ins kemur fram að leitað sé að kaup­anda/fast­eigna­þró­un­ar­að­ila sem muni taka að sér að leiða breyt­ingu á deiliskipu­lagi, hanna, fjár­magna og byggja upp íbúðir á lóð­inni. Einnig vekur Svf. Árborg sér­staka athygli á því að gerðar séu ríkar kröfur til við­semj­enda hvað varðar reynslu, hæfi og getu til að vinna verk­efni eins og þetta. Í sér­stökum úthlut­unar- og til­boðs­skil­málum sem fylgja útboð­inu kemur fram að lág­marks­krafa sé að til­boðs­gjafi hafi starfað 5 ár sam­fleytt við þróun og upp­bygg­ingu íbúða.“

Tómas bætir því við að „sú krafa að til­boðs­gjafi hafi að lág­marki 5 ára reynslu sam­fleytt af því að þróa slíka reiti og byggja íbúðir, úti­lokar tvo heima­að­ila sem hafa unnið að upp­bygg­ingu í Svf. Árborg sl. ár. Í fyrsta lagi úti­lokar Svf. Árborg, Sigtún Þró­un­ar­fé­lag sem fær skv. skil­mál­unum ekki að taka þátt þar sem að þeir hófu ekki vinnu við þróun og upp­bygg­ingu mið­bæj­ar­ins á Selfossi fyrr en eftir íbúa­kosn­ingu sem fór fram í ágúst 2018. Íbúa­kosn­ingu sem knúin var fram af íbúum sveit­ar­fé­lags­ins. Íbúar knúðu þá, þáver­andi meiri­hluta bæj­ar­stjórnar (D-lista) til þess að hlusta á kröfur íbúa og heim­ila almenn­ingi að segja sína skoðun á lýð­ræð­is­legan hátt. Kosn­ingin fór 60/40 verk­efn­inu í vil og nú síð­ast 90/10 þegar betrumbæt­ing á skipu­lag­inu var sett í raf­ræna íbúa­kosn­ingu. Og enn styttra er síðan að Jórvík hóf sína þróun og upp­bygg­ingu í Nýju-Jórvík.“

Heldur áfram:

„Einu heima­menn­irnir sem hægt er að slá því föstu að hafi af því reynslu að hafa þróað og byggt upp slíka reiti sam­fleytt í yfir 5 ár eru þeir aðilar sem hafa byggt upp reit­ina við Aust­ur­veg 69 á Selfossi og íbúða­byggð­ina í Dísa­stað­ar­landi.

Hvað veldur því að heima­menn fái ekki þátt­töku­rétt?

Í skil­málum útboðs­ins er skýrt tekið fram að skipu­lag T36 reits­ins skuli vinna í nánu sam­starfi við skipu­lags­yf­ir­völd Árborgar. Í ljósi þess hve náið sam­starfið á að vera á milli aðila að þá kemur veru­lega á óvart að skil­málar þessir sem sam­þykktir voru á fundi bæj­ar­ráðs Árborgar þann 1. júní sl. skuli hafa hlotið blessun for­manns bæj­ar­ráðs og skipu­lags­nefndar Svf. Árborgar, sem er einn og sami mað­ur­inn. Sami maður og fékk per­sónu­legan fjár­stuðn­ing frá ónefndum aðila tengdum Sigtúni Þró­un­ar­fé­lagi í upp­hafi síns stjórn­mála­fer­ils. Og sami maður og hefur í öllum sínum blaða- og vef­greinum minnst á upp­bygg­ing­una í mið­bænum í fyrstu máls­grein en sleppt því að minn­ast á hvað aðrir einka­að­ilar eru að gera í Sveit­ar­fé­lag­inu.“

Hann spyr hvað það sé sem hafi valdið „þessum sinna­skiptum for­manns bæj­ar­ráðs og skipu­lags­nefndar til vel­gjörð­ar­manna sinna tengdum Sigtúni þró­un­ar­fé­lagi? Getur verið að for­maður bæj­ar­ráðs sé ekki sáttur við þau eigna­skipti sem hafa orðið á Sigtúni Þró­un­ar­fé­lagi und­an­farið og að skráður eig­andi þess félags sé nú Aust­ur­bær ehf sem hefur ekki skilað árs­reikn­ingi til árs­reikn­inga­skrár fyrir rekstr­ar­árin 2021 og 2022, en Svf. Árborg gerði ríkar kröfur um það í upp­hafi við eigna­skipti mið­bæj­ar­ins og áður en að fram­kvæmdir hófust í mið­bænum að allt væri uppá borðum, eign­ar­hald og fjár­styrkur Sigtúns.

Er fram­an­greint ástæða sinna­skipta for­manns bæj­ar­ráðs- og skipu­lags­nefndar í Svf. Árborg og merki um að hann sé nú geng­inn í lið með hags­munum Svf. Árborgar?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas