Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sannleikurinn um Geirfinn

Sigursteinn Másson
Sig­ur­steinn Másson

Enn ein úttektin á hvarfi Geirfinns Einars­sonar er að koma út. Að þessu sinni er það Sigursteinn Másson sem gefur út þátta­röðina Réttar­morð undir merkjum Storytel. Sigursteinn, sem á að baki frábærar umfjallanir um sakamál, hefur sagt opinber­lega að um sé að ræða mikla afhjúpun á máli sem hefur verið ein mesta ráðgáta þjóðarinnar allar götur frá því Geir­finnur hvarf sporlaust. Inn í þá ráðgátu blandaðist svo hvarf Guðmundar Einars­sonar sem er annars óskylt mál að öðru leyti en því að með bellibrögðum tókst að tengja Sævar Cieselski, Erlu Bolla­dóttur og félaga þeirra inn í þessi dular­fullu mál og fá þau dæmd. Seinna voru þau sýknuð og greiddar háar bætur.

Bæði Mogginn og Vísir hafa farið mikinn í umfjöllun um nýju þættina en allt er undir formerkjunum hugsanlega og líklega. Sigursteinn boðar í viðtali við Vísi uppljóstrun á hvarfi Guðmundar þar sem hann telji „nokkuð ljóst“  hvað hafi gerst eftir að hann varð viðskila við félaga sína eftir dansleik í Hafnar­firði í byrjun árs 1974. Hann segir að aftur á móti sé óljósara hvað orðið hafi um Geirfinn sem hvarf í nóvember sama árs. „Ég er á því að við séum að nálgast þann punkt að geta sagt með nokkurri vissu hvað varð um Geirfinn,“ segir hann við Vísi. Aðspurður telur hann að einhver viti sann­leikann en að ekki sé hægt að útiloka sjálfsvíg.

Víst er að Storytel mun fá áskriftir út á Réttar­morð en svo virðist sem að litlu verði bætt við það sem áður hefur komið fram um hvarf Geirfinns og Guðmundar. Það er djúpt á sann­leikanum um Geirfinn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.
Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Slúður