Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Chernobyl ferðamenn taka „sjálfur“ og ögrandi myndir við kjarnorkuverið

Craig Mazin, höf­undur þátt­anna Chernobyl, sá ástæðu til að biðla til fólks að sýna Chernobyl svæð­inu og sögu virð­ingu á ferða­lögum sínum. Talsvert er um að fólk taki „sjálfur” á slys­staðnum. Þá er dæmi um mynda­tökur á nær­föt­unum.

Skjáskot úr þættinum
Skjáskot úr þætt­inum

The Guardian greinir frá. Vin­sældir Chernobyl meðal ferða­manna hefur auk­ist um 30-40% síðan HBO þætt­irnir um kjarn­orku­slysið voru frum­sýndir í maí. Áhrifa­valdar á sam­fé­lags­miðlum sem hafa heim­sótt stað­inn hafa sætt tals­verðri gagn­rýni fyrir mynd­birt­ingar á Instagram. Þá hafa þeir nýtt auk­inn áhuga á Chernobyl til að taka tísku­myndir.

„Það er frá­bært að þætt­irnir hafa vakið áhuga ferða­manna og aukið ferðir á yfir­gefna svæðið” tísti Mazin í gær og bætti við; „En já, ég er búinn að sjá mynd­irnar sem eru í umferð. Ef þú heim­sækir stað­inn, vin­sam­leg­ast hafðu í huga þær hörm­ungar sem áttu sér stað þarna. Komdu fram af virð­ingu fyrir alla þá sem þjáð­ust og var fórnað.”

Ónefnd kona hefur deilt myndum á Instagram teknar í Pripyat, yfir­gef­inn bær sem stendur næst kjarn­orku­ver­inu. Á mynd­unum stillir hún sér fyrir framan yfir­gefna bygg­ingu í þveng og hvítum varn­ar­galla (e. Hazmat suit). Nei­kvæðum athuga­semdum rignir nú yfir mynd­irnar.

Algengt er að áhrifa­valdar átti sig ekki á því hvernig bera skuli virð­ingu fyrir stöðum sem þau heim­sækja. Þá gera margir sér ekki grein fyrir lögum og reglum á svæð­inu sem heim­sótt er. Enn aðrir ber ein­fald­lega ekki næga virð­ingu fyrir ferða­manna­stöð­unum.

Áhrifa­vald­ur­inn Alex­ander „Sasha“ Tik­hom­irov er flestum íslend­ingum kunn­ugur. Hann var öku­maður bif­reiðar sem ekið var utan vegar í Bjarn­arflagi við Mývatn og birti af sér mynd við bíl­inn þar sem hann var fastur. Þá fékk hann háa sekt þar sem ólög­legt er að keyra utan­vegar á Íslandi án þess að sér­stakt leyfi Umhverf­is­stofn­unnar liggi fyrir.

Rússinn sætti mik­illar gagn­rýni og var ekki par sáttur með fram­komu íslend­inga og yfir­valda. „Ekki gera þetta, ekki gera hitt, ekki labba, hér má ekki anda. Það má ekki fljúga dróna hér þú mátt ekki fara af veg­inum og svo fram­vegis,“ segir við Instagram-mynd Tik­hom­irov.

Kjarn­orku­slys Chernobyl í Úkraínu átti sér stað árið 1986. Tveir ein­stak­lingar lét­ust þegar kjarn­orku­ofn sprakk í ver­inu og 28 ein­stak­lingar lét­ust úr eitrun sökum geisl­unnar. Þá er talið að hátt í þús­und slökkvi­liðs­menn og við­bragðs­að­ilar sem unnu á vett­vangnum hafi orðið fyrir alvar­legri geislun á þessum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas