Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Stuðningsmenn tyrkneska landsliðsins hóta Bjarna Ben öllu illu

„Vertu til­bú­inn að fá þennan bursta inn í þig,” segir meðal ann­ars í athuga­semdum við tíst Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þar sem hann segir þvotta­burst­ann vera fynd­inn en ekki móðgun.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Mynd/ Bára Huld Beck
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra. Mynd/ Bára Huld Beck

„Þú ert búinn að vera. Þú abb­að­ist upp á ranga aðila og nú er orðið of seint.” segir í einni athuga­semd­inni meðan annar skrifar: „Engin mis­kunn verður sýnd.”

Sjá Einnig: Bjarni gerir lítið úr reiði Tyrkja: „Dálítið fyndið en ekki móðgun“

„Við munum skera rass­inn þinn í Tyrk­landi” segir reiður stuðn­ings­maður Tyrk­lands og bætir við að þeir „muni sænga hjá kon­unum þínum.” Erfitt er að segja til um hvort hann sé að ávarpa íslensku þjóð­ina, lands­liðið eða hann telji ein­fald­lega að Bjarni stundi fjöl­kvæni. 

Ótal stuðn­ings­menn lands­liðs­ins í Tyrk­landi hafa sett inn athuga­semd við færslu Bjarna og margir þeirra hótað sömu fram­komu þegar íslenska lands­liðið keppir á móti því tyrk­neska þar í landi. Leik­ur­inn í Tyrk­landi mun fara fram í nóv­em­ber næst kom­andi.

Þá hafa margir deilt mynd af íslenska fán­anum þar sem búið er að koma fyrir kló­sett­bursta í sama lit.

Íslenski fán­inn skreyttur með kló­sett­bursta

Utanríkisráðherra Tyrklands ósáttur við Íslendinga

Leikmenn tyrk­neska lands­liðs­ins biðu í þrjár klukku­stundir áður en þeir komust að vega­bréfa­eft­ir­lit­inu á Kefla­vík­ur­flug­velli í gær­kvöldi. Þá var gerð ítar­leg leit í far­angri leik­mann­anna. Mevlüt Çavuşoğlu, utan­rík­is­ráð­herra Tyrk­lands, hefur for­dæmt með­ferð­ina og segir hana óásætt­an­lega og ekki í takt við góð sam­skipti milli ríkja. Þá segir hann stjórn­völd ætla að gera hvað þau geta til að fara í saumana á mál­inu.

Í bið­sal Leifs­stöðvar nálg­uð­ust frétta­menn lands­liðs­fyr­ir­lið­ann Emre Belözoglu. Á mynd­bandi, sem TRT Spor birti á Twitter, sést ónefndur aðili rétta út þvotta­bursta í stað hljóð­nema. Stuðn­ings­menn Tyrkja eru ekki par sáttir við upp­á­tækið og sumir þeirra full­yrt að um kló­sett­bursta sé að ræða. Þeir líta á gjörn­ingin sem gríð­ar­lega móðgun við fyr­ir­lið­ann og þjóð­ina. Þá hafa margir skilið eftir athuga­semd á Facebook-færslu KSÍ.

Eigandi þvottaburstans ekki íslenskur fréttamaður

Fjöl­miðlar í Tyrk­landi hafa nú fundið eig­anda þvotta­burstans. Krampon Sports tísti skjá­skot af Facebook síðu manns­ins. Þar segir að mað­ur­inn sé belgískur ferða­maður og heiti Corentin Siamang. Samkvæmt DV herja Tyrkir nú á Facebook síðu hans og senda meðal ann­ars myndir af Erdogan. Hatrið sem Íslend­ingar hafa fengið síð­ustu 12 tím­ana, mun lík­lega koma til með að minnka fyrir vikið.

Lands­leikur milli Tyrk­lands og Íslands fer fram á morgun, 11. Júní, á Laug­ar­dals­velli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas