Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Féllst á kröfu Kristrúnar um þingfund um stjórn efnahagsmála: „Það þarf að ráðast í aðgerðir“

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra
Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra

Forseti Alþingis, Birgir Ármanns­son, féllst á kröfu Sam­fylk­ingar um sér­stakan þing­fund um stjórn efna­hags­mála; það var for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Kristrún Frosta­dóttir, sem  krafð­ist þing­fundar um efna­hags­mál.

Á eftir Kristrúnu komu fleiri þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar í pontu og tóku undir kröfu Kristrúnar og Sam­fylk­ing­ar­innar; þar á meðal þing­menn Flokks fólks­ins, Pírata og Við­reisnar.

„Þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar hefur fram farið fram á við for­seta Alþingis að það verði sett á dag­skrá þing­fundar sem fyrst umræða um efna­hags­mál. Það eru nokkrir dagar eftir af þing­inu,“ sagði Kristrún og bætti við:

„Nú sjáum við vexti í tæpum 9% og 10% af verð­bólgu. Og það þarf ekki fleiri fundi í þjóð­hags­ráði eða bið eftir nið­ur­stöðum hús­næð­is­hóps til að átta sig á að það þarf að ráð­ast í aðgerðir sem taka gildi núna á næstu vikum. Við getum ekki beðið eftir nið­ur­stöðu um fjár­mála­á­ætlun fyrir árið 2024 til að bregð­ast við ástand­inu.“

Kristrún spurði „til hvers er ríkið ef ekki til að bregð­ast við ástandi sem þessu? Til að dreifa högg­inu af þessu áfalli sem nú ríður yfir. Við í Sam­fylk­ing­unni erum boðin og búin til að styðja allar þær til­lögur sem koma fram til að styrkja ungt fólk, lág­tekju­fólk, barna­fjöl­skyldur, sem eru að fá þetta í fangið núna. Það eru það eru þing­mál sem geta komið inn í þingið þar sem við getum tekið á þessu ástandi. Það munum við styðja og ég vona að hæst­virtur for­seti verði við beiðni okkar um umræðu um þessi mál áður en þing­inu lýkur og að við fáum aðgerðir.“

Birgir Ármanns­son.

Forseti Alþingis, Birgis Ármanns­son, sagði í kjöl­far orða Kristŕúnar að „for­seti vill geta þess að beiðni af þessu tagi kom fram af hálfu þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar núna fyrr í dag. Og for­seti hyggst bregð­ast við því með því að skipu­leggja slíka umræðu á næsta þing­fund­ar­degi, sem gæti þá verið næsta þriðju­dag, og mun eiga sam­ráð við þing­flokks­for­menn um fyr­ir­komu­lag þeirrar umræðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas