Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Viðkvæmir hvattir til að forðast útiveru í Reykjavík næstu daga

Gríð­ar­mikil svifryks­mengun mælist í borg­inni

Við Tjörnina
Við Tjörnina Við­kvæmir hópar eru beðnir um að spara úti­ver­una Mynd: Víkingur

Styrkur svifryks (PM10) mæld­ist hár á loft­gæða­mæli­stöðvum í Reykja­vík í morgun. Samkvæmt mæl­ingum var styrk­ur­inn sér­stak­lega mik­ill við Grens­ás­veg þar sem gildi PM10 náði 171,4 míkrógrömmum á rúmmetra klukkan 12 í dag, en til sam­an­burðar eru sól­ar­hrings­heilsu­vernd­ar­mörk 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Að sögn Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur er upp­runi ryks­ins fyrst og fremst frá umferð. Þar sem götur eru þurrar mælist einnig hátt svifryk á stöðvum sem eru fjær stærstu umferð­ar­æðum. Stefnt er að því að ryk­binda í borg­inni í nótt til að draga úr upp­þyrlun ryks, en ryk­bind­ing er sam­vinnu­verk­efni Reykja­vík­ur­borgar og Vega­gerð­ar­innar.

Gert er ráð fyrir svip­uðum veð­ur­að­stæðum um helg­ina og eru vonir bundnar við að ryk­bind­ing muni draga úr svifryks­mengun á næstu dögum.

Við­kvæmir hópar, svo sem ein­stak­lingar með önd­un­ar­færa­sjúk­dóma, aldr­aðir og börn, eru hvattir til að forð­ast úti­vist í lengri tíma og tak­marka áreynslu á meðan meng­unin er mikil. Almenn­ingur er jafn­framt hvattur til að draga úr notkun einka­bíla, meðal ann­ars með því að fresta ferðum sem ekki eru nauð­syn­legar, nýta almenn­ings­sam­göngur, samnýta bíla eða velja vist­vænni sam­göngu­máta.

Fyr­ir­tæki eru hvött til að huga að fjar­vinnu fyrir starfs­fólk á svifryks­dögum, sé þess kostur, og draga úr akstri ef mögu­legt er.

Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur fylgist náið með loft­gæðum borg­ar­innar og sendir frá sér við­var­anir og leið­bein­ingar ef þörf krefur. Almenn­ingur getur fylgst með stöðu loft­gæða á vefnum loft­gæði.is, þar sem finna má kort yfir mæli­staði í Reykja­vík og víðar um landið.

Svifryk eru fínar rykagnir sem eiga greiða leið niður í önd­un­ar­færi og geta haft áhrif á heilsu, sér­stak­lega hjá við­kvæmum ein­stak­lingum. Helstu upp­sprettur svifryks eru upp­spænt mal­bik, sót frá dísel­bruna, jarð­vegsagnir, salt og aska.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas