Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Síðasti líflátsdómurinn á Íslandi – Setti rottueitur í skyr bróður síns og kenndi manni sínum um

Kleppsspítali. Eiginmaður morðingjans var á geðspítalanum til æviloka.
Klepps­spít­ali. Eig­in­maður morð­ingj­ans var á geð­spít­al­anum til ævi­loka.

Eitt fal­legt laug­ar­dags­kvöld ákvað Júlíana Silfa Jóns­dóttir að bjóða 48 ára bróður sínum, Eyjólfi Jónssyni, í heim­sókn til sín á Brekku­stí 14 í Reykja­vík. Júlíanna bauð honum upp á góm­sætt skyr. Eyjólfur grun­aði ekki hvað lá að baki. Um nótt­ina fékk hann heift­ar­leg upp­köst. Honum hafði verið byrlað. Ástæðan var sú fárán­leg­asta.

Eyjólfur átti spari­sjóðs­bók með nokkrum hund­ruð krónum  sem hann geymdi hjá systur sinni. Hann var ein­hleypur verka­maður og átti hann heima á Vest­ur­götu í Reykja­vík. Júlíönu sár­vant­aði pen­inga og greip hún til ill­virkis. Hún hafði komið fyrir rottu­eitri í skyr Eyjólfs til að hafa af honum spari­sjóðs­bók hans. Heimskringla greinir frá atvik­inu sem varð árið 1913:

„Eyjólfur heim­sótti systur sína laug­ar­dags­kvöldið 1. þ.m., hafði verið við jarð­vinnu suður á Melum og var á heim­leið. það var á sjötta tíma. Bauð hún honum skyr og þá hann það. En eitt­hvað óbragð þótt­ist hann finna að því, og hafði orð á. Hún kvað það koma af brenni­víni, sem í það hefði farið og jós yfir skyrið sykri. Át hann það þá og gekk svo út, snæddi kvöld­verð og kom heim til sín kl. að ganga 9. Litlu síðar fékk hann upp­köst og héld­ust þau til kl. 3 um nótt­ina. Heim­il­is­fólkið, sem stund­aði hann í þessum veik­indum, veitti þvi elt­ir­tekt, að það, sem upp úr honum kom, lyktaði mjög illa, og að af því lýsti eins og maur­ildi. “

Eyjólfur var hress­ari dag­inn eftir og hélt hann heim til Júlíönu. Hann ætl­aði sér að sækja kistu sem hann átti geymda hjá henni. En þegar hann skoð­aði í kist­una vant­aði spari­sjóðs­bók hans sem inni­hélt rúmar 700 krónur. Eyjólfur sótti liðs­auka og fór aftur til systur sinnar og krafð­ist þess að fá bók­ina afhenta. Að lokum fékk hann sína pen­inga.

Eyjólfur hélt aftur til vinnu næstu tvo daga og amaði ekk­ert að honum þar til á þriðju­dags­kvöld þegar hann varð varð hann skyndi­lega veikur. Lét hann lækni vita af skyrát­inu. Hann var fluttur á spít­ala og lést  þar skömmu síðar. Eitrun varð Eyjólfi að bana.  Júlíanna var hneppt í varð­hald þar sem húin ját­aði gjörðir sínar. Sagði hún þetta hafa verið hug­mynd sam­býl­is­manns síns, Jóns Jóns­sonar.

Fram kemur í bók­inni Lands­yf­ir­rétt­ar­dómar og hæsta­rétt­ar­dómar í íslenzkum málum að Júlíana var kærð fyrir mann­dráp og dæmd til líf­láts. Eig­in­maður hennar var ákærður fyrir hlut­deild í mann­dráp­inu og var honum aðeins gert að greiða lága upp­hæð.

Júlíana var niðu­brotin í rétt­ar­höld­unum, grét gjarnan hástöfum. Hún full­yrti að Jón hefði eggjað hana til morðs­ins og að hún sjálf væri geð­veik. Geð­læknir vitn­aði hins vegar um að Júlíana væri sak­hæf. Hjónin voru í varð­haldi fram á vorið og bæði báru þau sig illa. Þau hegð­uðu sér sem geð­veik væru en fanga­verð­irnir voru ekki trú­aðir á það.

Á Kleppi til æviloka

Þann 24. apríl árið 1914 voru dóm­arnir loks kveðnir upp. Jón var sýkn­aður vegna skorts á sönn­un­ar­gögnum en úrskurð­aður geð­veikur og færður beint á Klepps­spít­ala. Júlíana var hins vegar dæmd til dauða og sá dómur stað­festur í lands­yf­ir­rétti. Tæpu ári síðar var dóm­ur­inn stað­festur af Hæsta­rétti í Kaup­manna­höfn en kon­ungur mild­aði dóm­inn úr líf­láti í ævi­langa fang­els­is­vist. Haustið 1919 var hún loks náðuð af kon­ungi og lifði hún
í tólf ár eftir það. En allan þann tíma var hún veikluð á lík­ama og sál. Jón Jónsson lést þetta
sama ár, 1931, sem vist­maður á Klepps­spít­ala.

Dómurinn yfir Júlíönu var sein­asti líf­láts­dóm­ur­inn hér á landi. Hins mikla dugn­að­ar­manns, Eyjólfs, var sárt saknað og skildi hann eftir sár í hjörtum náinna vina og fjöl­skyldu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn