Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Neitar að tjá sig um meint einelti Söru Lindar: „Forvitinn um þessar nornaveiðar sem eru í gangi“

Sara Lind Guðgeirsdóttir er hætt hjá ríkinu –
Sara Lind Guð­geirs­dóttir er hætt hjá rík­inu – Mynd: Hringbraut – skjáskot

Starfs­menn Rík­is­kaupa kvört­uðu til þáver­andi for­stjóra Rík­is­kaupa vegna ein­eltis Söru Lindar Guð­bergs­dóttur og tveggja karl­kyns lög­fræð­inga, gagn­vart fjórða lög­fræð­ingnum.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs leit­uðu starfs­menn Rík­is­kaupa til Björg­vins Vík­ings­sonar, þáver­andi for­stjóra Rík­is­kaupa, vegna ein­eltis sem þeir töldu sig verða vitni að gagn­vart lög­fræð­ingi á lög­fræðisviði stofn­un­ar­innar. Sara Lind Guð­geirs­dóttir, sem seinna tók við af Björg­vini, og tveir nýút­skrif­aðir lög­fræð­ingar, voru sögð leggja þann fjórða í ein­elti en sá lög­fræð­ingur var með mun meiri reynslu en hinir á svið­inu. Meintur þol­andi ein­elt­is­ins kvart­aði hins vegar, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs, ekki undan ein­elti, heldur óeðli­legri hegðun.

Samkvæmt heim­ild­ar­mönnum Mannlífs fór meint ein­elti eða meint óeðli­leg hegðun gagn­vart lög­mann­inum, ekki fram­hjá neinum á stofn­un­inni. Samkvæmt þeim var honum haldið utan við mál­efni lög­fræðis­viðs­ins. Þá hafi Sara Lind og hinir tveir lög­fræð­ingar sviðs­ins, iðu­lega farið þrjú saman í mat, þrjú í kaffi og hafi oft sent fyndin skila­boð á milli sín í símunum, hvíslað sína á milli og hlegið saman. Þegar meintur þol­andi hafi spurt hvort hann hefði misst af ein­hverju skemmti­legu, hafi svarið alltaf verið það að Sara hefði bara verið að senda hinum tveimur eitt­hvað sem skipti engu máli. Um hafi verið að ræða „full­komin félags­leg útskúfun,“ eins og einn heim­ild­ar­manna Mannlífs orð­aði það. Þá hafi þrí­eykið einnig haldið lög­fræð­ingnum utan við verk­efni og gert lítið úr honum fag­lega.

Einn heim­ild­ar­manna Mannlífs, sem ekki vildi koma fram undir nafni, sagð­ist hafa orðið vitni að „ljótri hegðun“ gagn­vart hinum meinta þol­anda. „Þetta var bara mjög, mjög illa gert. Þarna var vegið að heil­indum mjög hæfrar mann­eskju. Bara mjög barna­legir skóla­ein­eltis til­burðir. Það var ítrekað gert lítið úr hennar starfi.“

Heim­ildir Mannlífs herma að meintur þol­andi hafi að lokum bug­ast undan hegðun þrí­eyk­is­ins en hafi þá verið boðið af Söru, að halda utan um ýmis hlið­ar­verk­efni, sem lutu að því að halda henni fjarri lög­fræði­teym­inu.

Eins og áður segir kvart­aði meintur þol­andi ekki undan ein­elti við Björgvin Vík­ings­son, þáver­andi for­stjóra Rík­is­kaupa, heldur undan óeðli­legri hegðun gagn­vart sér. Haldnir voru fundir og málin rædd en lög­fræð­ing­ur­inn hafi að lokum fært sig til í starfi innan stofn­un­ar­innar. Þann 8. sept­em­ber var lög­fræð­ing­ur­inn einn af fjórum starfs­mönnum sem sagt var upp hjá Rík­is­kaupum en Mannlíf sagði frá því fyrst miðla.

Mannlíf ræddi við Björgvin Vík­ings­son, fyrr­ver­andi for­stjóra Rík­is­kaupa og spurði hann hvort ein­elt­is­mál hefðu komið á borð hans, frá starfs­mönnum stofn­un­ar­innar en hann taldi ekki rétt að ræða starfs­manna­málin opin­ber­lega. „Ég er samt svo for­vit­inn um þetta witch hunt (ísl. norna­veiðar) sem er í gangi. Þetta er svo áhuga­vert og ég skil ekki hvaðan það kemur. Og á Söru sér­stak­lega, þetta er svo áhuga­vert. Mér finnst þetta skrítnar pæl­ingar.“

Þegar blaða­maður Mannlífs svar­aði því til að fjöl­mið­ill­inn væri ein­ungis að elt­ast við ábend­ingar sem hafi borist svar­aði Björgvin: „Já, já. Það er alveg í góðu lagi.“

Ekki náð­ist í Söru við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar