Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Femínistar hjóla harkalega í Eddu Falak: „Þá máttu fokka þér“

Femínistar virð­ast vera komnir í hár saman ef marka má orða­skipti og stöðu­upp­færslur á Twitter seint í gærkveldi og nótt. Sumum ummælum hefur nú verið eytt sem og stöðu­upp­færslu sem Helga Bene­dikts­dóttir einn með­limur Öfga setti fram á Twitter. Sú stöðu­upp­færsla   varð til þess að Edda Falak hefur séð sig knúna til þess að svara á sínum Twitter aðgangi.

Edda Falak, fjár­mála­fræð­ingur, Crossfit þjálf­ari, Þátta­stjórn­andi, Stofn­andi og Eigandi hlað­varps­ins Eigin Konur. Mynd af Facebook

Ef marka má inn­legg Eddu Falak á Twitter reikn­ingi sínum hefur Helga Ben setti inn stöðu­upp­færslu á sínum Twitter reikn­ingi sem fól í sér gagn­rýni á þá femínista sem hafa marga fylgj­endur á sam­fé­lags­miðlum og nýta sér ekki stöðu sína í bar­átt­unni gegn kyn­ferð­is­of­beldi sem hefur verið í gangi upp á síðkastið. Helga Ben virð­ist hafa eytt þeirri færslu en hún var svo hljóð­andi:

„Ef þú ert opin­ber femínskur áhrifa­valdur, en hefur ekki látið í þér heyra síð­ustu daga og vikur. Þá máttu fokka þér“

Stöðu­upp­færslan sem gerði allt vit­laust en var svo síðar eytt

Stöðu­upp­færsla Eddu Falak sem er í raun svar hennar við orðum Helgu Ben, er eft­ir­far­andi: „Þetta er alls ekki að hjálpa umræð­unni. Það þarf engin að berj­ast opin­ber­lega öllum stundum! við vitum ekki hvað fólk er að ganga í gegnum. Getum við sýnt smá til­lits­semi og hætt að leika ein­hverjar hetjur?“.

Helga Bene­dikts­dóttir ein af með­limum hóps­ins Öfgar. Mynd af Facebook

Helga Ben svarar Eddu Falak og segir: „Ég má alveg vera pirruð að fólk með plat­form noti það ekki þegar ég með ekk­ert plat­form er að vinna frá morgni til kvölds til þess að koma þessum mál­efnum á fram­færi“ Edda segir Helgu að hún megi gera það sem henni sýn­ist, að hún sé ein­ungis að benda á það að þurfi að sýna öðru fólki til­lit­semi þó það sé með stóran hóp fylgj­enda.

Bryn­hildur Yrsa, ein af með­limum hóps­ins Öfgar Mynd af Facebook

Bryn­hildur Yrsa, með­limur hóps­ins Öfga blandar sér þá í umræð­una um spyr Eddu: „Benda á ? Þetta kall­ast ekki að benda á í minni sveit“. Edda svarar og segir: „Stelpur, ég er alveg all in með ykkur í þess­ari bar­áttu. Finnst samt mik­il­vægt að muna að það eru ekki allir sem vilja taka þátt öllum stundum. Margir trig­geraðir og eru hvíla sig. Beinum bara umræð­unni í rétta átt, sem er ekki að skjóta niður aðra femínista“ Ummæli Eddu hafa farið illa í Bryn­hildi Yrsu og loka orð hennar eins og hún sagði sjálf voru þessi: „by all means ekki segja stelpur þegar ein stelpa segir eitt­hvað. Ef eitt­hvað gerir mig pis­sed er það þegar fólk eignar mér orð sem ég hef ekki mælt. Svo by all means again, ekki segja stelpur þegar eg hef ekk­ert sagt neitt um þetta efni“.

Hulda Hrund, ein af með­limum hóps­ins Öfga. Mynd af Facebook

Hulda Hrund  sem er einnig ein kvenn­anna á bak við Öfga spyr Eddu: „Hver að þínu mati er að leika hetju? Er bara að reyna að átta mig á þessu. Þú segir fyrir ofan að við séum allar í þessu saman en þetta hetjur comment er ekki upp­byggj­andi á neinn hátt“. Edda svarar Huldu Hrund : „segja öðrum að fokka sér vegna þess að það er ekki opin­ber­lega í umræð­unni? kommon stelpur“. Hulda Hrund sem er greini­lega ekki sátt segir: „Það má vel vera að orða­lagið henti ekki öllum. Það má vissu­lega skoða alveg eins og að kalla það hetju­skap sem þú hér setur út á.“ Bryn­hildur Yrsa lætur þá í sér hvína: „Þetta hetju­komment er hall­æris­leg leið til að hjóla í mann­inn. Ég þoli hvorki hall­æris­heit né þegar fólk hjólar í mann­inn“.

Laufey Ebba er ein vin­sælasta íslenska stjarnan á sam­fé­lags­miðl­inum, Tik Tok. Mynd af Facebook

Það er ljóst að það eru ein­hver illindi á milli kvenn­anna sem verður að telj­ast miður því ef þeim er annt um bar­átt­una þá er þetta ekki rétta leiðin, að veit­ast að hvor annarri. Laufey Ebba bendir þeim á nákvæm­lega það: „Þegar við byrjum að skjóta hvor aðra fellur þetta um sjálft sig.. þannig ég er sam­mála þér með þetta, finnst þetta óþarfi og stundum er maður bara ekki orku í svona stúss..OG það er ekk­ert allra að taka þennan slag“.

Skjáskot af Twitter
Skjáskot af Twitter

Hér má sjá inn­legg Eddu Falak í heild sinni utan þess auð­vitað sem hefur nú þegar verið eytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas