Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Gerir heimildarmynd um Hauk Hilmarsson: „Fyrir mér var Haukur stór áhrifavaldur í minni æsku“

Jón Grétar Jónasson Sigríðarson, kvikmynda­gerðamaður er byrjaður að vinna heimildar­mynd um Hauk Hilmarsson, baráttu­mann og listamann, sem lést í sprengju­árás Tyrklands­hers í Sýrlandi 2018.

Jón Grétar safnar nú fyrir gerð myndarinnar á Karolina Fund, söfnunar­síðunni íslensku.

Samkvæmt þeirri síðu verður myndin í fullri lengd og fjallar um Hauk Hilmarsson sem var „þekktur á Íslandi sem baráttu­maður fyrir réttindum hælis­leitenda og sem ástríðu­fullur andstæðingur fasisma.“

Þá segir Jón Grétar á Karolina Fund síðunni að Haukur hafi verið mikill áhrifa­valdur í lífi hans:

„Fyrir mér var Haukur stór áhrifa­valdur í minni æsku, góður félagi og vinur.“

Heimildar­myndina byrjaði Jón Grétar að taka upp árið 2014 og var hugmyndin uppruna­lega að gera mynd sem næði yfir nokkra áratugi og tæki stöðuna á Hauki á nokkurra ára fresti.

„Því miður lítur allt út fyrir að Haukur hafi fallið í Sýrlandi í febrúar árið 2018 þar sem að hann var að berjast fyrir Kúrda. Ég ákvað að fara af stað með þetta verkefni fyrir ári síðan og ætlaði með það í fjár­mögnun þá en áttaði mig fljótlega á því að ég var alls ekki tilbúinn.“

Segir Jón Grétar enn fremur á Karoline Fund-síðu sinni að hann hafi gert lítið annað síðasta árið en að liggja yfir upptökunum sem þeir Haukur gerðu árið 2014, auk alls efnisins um Hauk sem hann komst yfir.

Stefnt er að því að hefja tökur á heimildar­myndinni í júní 2022, og að þeim ljúki í ágúst, sama ár. Þá er áætlað að myndin verði tilbúin í nóvember 2022, en myndin verður til að byrja með einungis aðgengileg styrktar­aðilum Karolina Fund söfnunarinnar.

Hér má styrkja verkefnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.
Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Lögregla stöðvaði þrjá ökumenn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í gærkvöldi og nótt.

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts