Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Víðir varar við úreltu viðvörunarkerfi Íslands

„Réttar upp­lýs­ingar um stöðu mála er for­senda þess að þeir sem þurfa geti tekið réttar ákvarð­anir“

Víðir Reynisson
Víðir Reyn­is­son Er þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar Mynd: Víkingur

Víðir Reyn­is­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi sviðs­stjóri almanna­varna hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra, telur brýnt að stjórn­völd hraði inn­leið­ingu nýs við­vör­un­ar­kerfis sem geri kleift að senda skila­boð sam­tímis í alla far­síma lands­manna þegar hættu­á­stand skap­ast.

Víðir ræddi málið undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Hann sagði miðlun réttra upp­lýs­inga vera einn af lyk­il­þáttum áfalla­þols og þjóðar­ör­yggis, enda væri mik­il­vægt að bæði almenn­ingur og við­bragðs­að­ilar gætu brugð­ist hratt við þegar vá steðjar að.

„Réttar upp­lýs­ingar um stöðu mála er for­senda þess að þeir sem þurfa geti tekið réttar ákvarð­anir og brugð­ist við eins og þörf krefur,“ sagði Víðir.

Hann benti á að upp­lýs­inga­bæk­lingur almanna­varna um við­búnað ein­stak­linga og fjöl­skyldna vegna ham­fara væri vænt­an­legur. Slíkur bæk­lingur væri góð byrjun en jafn­framt þyrfti að tryggja að hægt væri að koma áríð­andi upp­lýs­ingum hratt og örugg­lega til allra þegar á reyndi.

Víðir sagði að öll Norð­ur­löndin og mörg önnur Evr­ópu­ríki hefðu tekið upp kerfi sem gera yfir­völdum kleift að senda við­var­anir í alla far­síma sam­tímis, ann­að­hvort á afmörk­uðum svæðum eða um heilt land. Við próf­anir í Noregi hefðu slík skila­boð borist í alla síma lands­ins á örfáum sek­úndum.

SMS kerfið getur valdið töfum

Hér á landi sé hins vegar enn stuðst við hefð­bundið SMS kerfi. Víðir sagði það baga­legt þar sem skila­boðin fari í sömu bið­röð og önnur SMS skila­boð. Mikil notkun kerf­is­ins geti því jafn­framt tafið boðun við­bragðs­að­ila þegar mest liggur við.

Hann nefndi sem dæmi eld­gosið í Holu­hrauni þegar senda þurfti við­vörun vegna gasmeng­unar í Eyja­firði. Að sögn Víðis tók þá um 45 mín­útur að koma við­vör­un­inni til íbúa.

„Nýtt kerfi sem sendir boð á alla síma á sama tíma er því mik­il­vægt og nauð­syn­legt verk­efni sem hraða þarf í nafni þjóðar­ör­yggis,“ sagði Víðir.

Hann telur því mik­il­vægt að stjórn­völd hraði upp­bygg­ingu slíks kerfis svo hægt verði að koma við­vör­unum til almenn­ings hratt og örugg­lega þegar hættu­á­stand skap­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

  • Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi