Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Rigningin er góð

Finnbogastaðafjall í Árneshreppi.
Finn­boga­staða­fjall í Árnes­hreppi. Mynd: Reynir Traustason

Ferðalag um Ísland býður upp á ýmis skemmti­leg­heit sem fel­ast í síbreyti­legu veðri. Sjaldn­ast er hægt að sjá fyrir veðra­brigðin með löngum fyr­ir­vara þótt það sé mis­jafnt eftir lands­hlutum. Við Íslend­ingar höfum löngum verið sól­þyrstir eftir kalda og gusta­sama vetur. Þessi þrá okkar eftir hinu eilífa sól­skini brýst gjarnan fram í því að fjöldi lands­manna leggur upp á sól­ar­strönd til að tana og velta sér í sandi og sól. En þessi við­horf um að sól­skinið sé öllu öðru mik­il­væg­ara hafa verið að breyt­ast smám saman. Úti­vi­star­fólk gerir sér margt grein fyrir því að veður er öðrum þræði hug­ar­á­stand. Fjall­ganga í rign­ingu eða þoku getur verið allt eins gef­andi og þegar sólin skín sem skær­ast. Göngu­mað­ur­inn upp­lifir dulúð­ina í þokunni. Kynja­myndir sem spretta fram og örva hug­mynda­flugið. Regnið skaðar ekki til lengri tíma. Enginn er verri þótt hann vökni. Það felst í því til­breyt­ing að stunda úti­veru við breyti­legar aðstæður. Til sam­an­burðar má nefna að landið hjúpað snjó er með allt öðrum blæ en ger­ist þegar það er í sum­ar­skrúða.

Erlendir ferða­menn á Íslandi kunna margir að meta kulda og slag­viðri. Þeim er sama um sól­skinið, en sækj­ast eftir frísk­andi og súr­efn­is­ríku lofti. Sumir hverjir koma frá löndum þar sem nán­ast alltaf er sól og veðra­brigði lítil sem engin. Slíkt býður ekki upp á fjöl­breytni og er leið­in­legt til lengdar. Svo eru það hita­bylgj­urnar sem ganga reglu­lega yfir með til­heyr­andi skóg­ar­eldum og ófögn­uði.

Kuldinn er auð­lind

Ítalskir ferða­menn á Ströndum voru svo „óheppnir“ að vera í þoku og sudda í nokkra daga. Spurðir um líðan sína sögð­ust þeir vera alsælir. Á heima­slóðum var hita­bylgja sem veldur van­líðan og óáran. Í sudda Strand­anna fengu þeir upp­lifun og önd­uðu að sér súr­efn­is­ríku loft­inu. Kuldinn er auð­lind, var boð­skap­ur­inn.

Auðvitað má öllu ofgera og slag­viðri til lengri tíma getur verið íþyngj­andi. En það er vert að muna þau fleygu orð Rose Kennedy að eftir storm­inn syngja fugl­arnir. Flestir þekkja þá sælu­til­finn­ingu sem fylgir því þegar sólin brýst fram eftir rign­inga­tíð. Þá er gaman. Það er þessi fjöl­breytni sem Ísland býður upp á sem er svo gef­andi. Aðal­at­riðið er að lifa og njóta í núinu. Þegar rignir þá ein­fald­lega klæðum við af okkur væt­una og skemmtum okkur eins og börnin við að stappa í polla og vaða yfir læki. Munum að rign­ingin er góð, eins og segir í þekktu dæg­ur­lagi. Vatnið er und­ir­staða alls lífs á jörð­inni.

Ísland er eitt af fal­leg­ustu löndum heims með alla sína duttl­unga, hættur og fjöl­breyti­leika. Við megum ekki van­meta þá feg­urð sem er við hvert fót­mál í óbyggðum. Njótum lands­ins okkar og verum með­vituð um þá heppni að vera ekki dæmd til að skrælna upp í enda­lausu sól­skini.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Náttúruleg líkamslykt getur tengst nánd og góðum minningum, en segir ekki til um hvort samband muni endast.
Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu