Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Langveik kona ósátt við framferði lögreglu eftir umferðaróhapp: „Hvað er þetta eiginlega?“

Myndin tengist fréttinni ekki beint
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Kona sem ekki vill láta nafn síns getið missti meðvitund undir stýri er hún keyrði í íbúðar­götu í Reykjavík um daginn en konan er langveik. Segir hún farir sínar ekki sléttar í samskiptum sínum við lögregluna.

Vinkona konunnar, Sunna að nafni, skrifaði færslu um málið þar sem hún hneikslast á framferði lögreglunnar í málinu.

„Langveik vinkona mín lendir í því um daginn að missa meðvitund undir stýri keyrandi í íbúðar­götu rétt hjá heimili sínu. Hún keyrir útaf og í snjóskafl, þar sem hringt er á lögreglu og sjúkrabíl. Hún er þvoglumælt og ennþá hálf out of it þegar hún rankar við sér og man ekkert hvað gerðist undan­farin klukku­tíma ca. Löggunni grunar að hún sé undir áhrifum áfengis, fíkniefna eða ópíóða svo þeir taka af henni bíllyklana og fylgja henni á bráða­mótökuna til að bíða niður­stöðu blóðprufna. Vinkonan hafði tekið 1 Tradolan (ópíóði) um morguninn, en hún gerir það flesta morgna og samkvæmt upplýsingum lyfja­fræðings þá fer það lyf úr blóðinu á 6 tímum. Lyfið var tekið kl 10 og slysið varð kl 18, 8 tímum seinna,“ skrifar Sunna í byrjun færslunnar. Því næst segir hún að vinkona hennar hafi sagt lögreglunni að kona hennar gæti komið upp á bráða­móttöku til að sækja lyklana að bílnum sem sat enn fastur á umferðar­eyju:

„Vinkonan segir löggunni að konan hennar geti komið upp á bráða­móttöku til að sækja lyklana, en löggan segir nei. Konan hennar kíkir á bílinn og sér að hann er fastur en að sama skapi fastur á umferðar­eyju og er hvorki fyrir bílum né gangandi vegfarendum. Það er ekkert að bílnum nema smá beygla á stuðara.“

Niður­stöður úr blóð­prufum sýna svo ekkert athuga­vert í blóðinu:

„Vinkonan fær niður­stöður úr blóð­prufum og hvorki áfengi, fíkniefni né ópíóðar finnast í blóðinu. Blóð­prufur sýna aftur á móti alvarlegan blóðskort og járnleysi. Einnig finnast hjartsláttatruflanir og blóð­þrýstingur er upp og niður.

Löggan fer þar sem ekkert saknæmt hefur átt sér stað en ákveður að taka lyklana samt með sér, í staðin fyrir að skilja þá eftir hjá veikri vinkonunni eða leyfa konunni að sækja lyklana uppá bráða­móttöku.“

Næst í færslunni segir Sunna frá því er kona vinkonunnar sækir lyklanna daginn eftir til lögreglunnar.

„Daginn eftir fer konan að sækja lyklana og er þá tjáð að bílinn hafi verið dreginn í burtu og hún þurfi að fara í Vöku til að sækja hann. Konan fer þangað og fær bílinn gegn því að borga tæplega 50 þúsund króna gjald. Taka ber fram að vinkonan og konan eru báðar öryrkjar.“

Viku seinna fær vinkona Sunnu afrit af lögreglu­skýrslunni en þar sést að svo virðist sem lögreglan hafi verið búin að ákveða snemma í ferlinu að vinkonan væri lyfjuð:

„Um það bil viku seinna fær vinkonan afrit af lögreglu­skýrslunni. Þar sést greini­lega á myndum að jú bíllinn er fastur, en ekki fyrir neinum. Smá mokstur og auðvelt hefði verið að losa hann og ef lyklarnir hefðu ekki verið teknir þá hefði það verið gert sama dag eða morguninn eftir.Samkvæmt upplýsingum frá Vöku þá hefur löggan verið að fá slatta af kærum undan­farið, vegna þess að þeir eru að láta draga bíla af of litlu tilefni.Í lögreglu­skýrslunni stendur meðal annars:„…en illa gekk að ræða við hana og afla frá henni upplýsinga þar sem hún var sjáanlega lyfjuð og alltaf að detta inn og út úr meðvitund.“ – Þarna eru þeir strax búnir að ákveða að vinkonan sé dópuð.„…héraðs­læknir mætti þá á vettvang og framkvæmdi sitt akstursmat á X sem hún féll á.“ – Já auðvitað, ef það líður yfir fólk sökum blóð­leysis þá er það ekkert skrítið að það sé ekki dæmt aksturs­hæft rétt eftir atburðinn. Það er ekkert samasemmerki á milli þess og þess að vera lyfjaður eða dópaður.„…sagði X vera þvoglumælta, syndandi til augnanna, með óstyrkar augn­hreyfingar. Hann sagði einnig að samhæfing hreyfingar X væri frekar léleg og að ástand hennar líktist því að hún væri undir áhrifum mikilla lyfja.“ – Já vinkonan var mjög veik, það er staðfest, veikari en hún sjálf hélt. Stikk­orðið hér er „líkist“. Læknirinn er að líkja ástandinu við lyfja­neyslu, ekki að segja að svo sé. Mjög veikt fólk getur auðveldlega litið út og hegðað sér eins og það sé dópað, einfald­lega vegna þess að það er slappt.„…sagði að X hefði sagt við sig að hún væriþá búin að taka ópíóð lyf fyrr um daginn sem maki hennar hafi gefið henni áður en hún fór út að aka bifreið sinni.“ – Já 8 tímum áður, lyfið er farið úr kerfinu! Líka lyf sem vinkonan tekur reglulega, líkaminn er þar af leiðandi orðinn vanur því og engin vímuáhrif koma fram, ef þau þá gerðu það nokkurn tíman.Aðeins á einum stað stendur „Neysla efna ekki staðfest“, á forsíðunni undir brot/nánari skýring. Aldrei er minnst á það í vitnis­burði og aðaltexta skýrslunnar. Það er aftur á móti talað ítrekað um hvernig vinkonan virðist lyfjuð og grun­semdir um neyslu. Þetta lítur allt út eins og löggan hafi dæmt strax og skýrslan er sett upp til að rökstyðja þann dóm eða skoðun.

Einnig er athyglis­vert að orðalagið „Neysla efna ekki staðfest“ er notað í stað þess að segja einfald­lega að ekkert hafi fundist. Aftur finnst mér þetta orðalag vera sett upp til rökstuðnings við það sem löggan var búin að ákveða fyrirfram.“

Að lokum spyr Sunnar ýmissa spurninga og er nokkuð orðhvöss enda ekki sama um vinkonu sína:

„Hvað er þetta eiginlega?Hvaða fávita löggu datt í hug að fara bara með lyklana?Af hverju voru lyklarnir ekki bara skildir eftir annað hvort hjá vinkonunni eða í afgreiðslu bráða­móttöku svo konan gæti sótt þá, losað bílinn og keyrt hann heim í gær?Af hverju var hringt í Vöku og þær ekkert látnar vita og allur kostnaður á þeirra höndum?Af hverju er það ekki nóg að læknir staðfesti að vinkonan sé raun­verulega veik en ekki full eða dópuð?Af hverju er það ekki tekið skýrt fram í skýrslunni að hún var ekkert dópuð, bara veik?Af hverju er endalaust minnst á lyf, að vera lyfjaður og ópíóða í skýrslunni?

Mér finnst þetta vera hálfgert, eða jafnvel bara heilgert, lögreglu­ofbeldi og vald­níðsla.“

Mannlíf spurði hinu langveiki vinkonu Sunnu hvort hún hyggðist kæra lögregluna fyrir að láta Vöku keyra bílnum á brott. „Það er í skoðun. Ekkert ákveðið ennþá,“ svaraði hún og bætti við að hún væri ennþá að jafna sig því þetta hafi verið áfall og hún sé ennþá veik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi