Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Seldi „Lemon alien dawg“ og flúði út um glugga

Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt

Héraðsdómur Reykjaness
Hér­aðs­dómur Reykja­ness Mynd: Víkingur

Karlmaður hefur verið dæmdur í 45 daga fangelsi og til greiðslu 950 þúsund króna sektar fyrir fíkniefna- og umferðar­lagabrot. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt. Dómur féll í Héraðs­dómi Reykjaness í dag.

Málið varðar brot sem framin voru á tíma­bilinu frá maí til nóvember árið 2024. Meðal annars var maðurinn sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna og fíkniefna­akstur.

Eitt atvikanna átti sér stað 7. júní 2024. Lögreglu­menn komu þá að húsnæði þar sem maðurinn var staddur og fundu mikla kannabis­lykt. Samkvæmt dóminum sat hann við stofuborð þegar lögreglu bar að garði. Hann stóð þá upp, kastaði frá sér fíkni­efnum og hljóp að glugga í enda herbergisins.

Maðurinn opnaði gluggann, stökk út og tók á rás. Hann sinnti ekki fyrir­mælum lögreglu um að stöðva för sína en lögreglu­menn hlupu hann að lokum uppi.

Á borðinu fundust kannabis­efni, vigt og fjöldi smellulás­poka. Í tösku voru einnig nokkrir pokar með kannabis­efnum í sölu­einingum. Hluti efnanna fannst fyrir utan gluggann sem maðurinn hafði stokkið út um. Alls lagði lögregla hald á 49,21 gramm af maríhúana og við leit á honum fundust 0,48 grömm af amfetamíni.

Farsími fíkniefna­salans var jafnframt hald­lagður og við rannsókn hans fundust samskipti sem dómurinn taldi benda til fíkniefna­viðskipta. Í Telegram-samskiptum spurði kaupandi eftir fimm grömmum og svaraði notandi símans að hann væri með kannabis­tegundirnar „chewdawg“, „Lemon alien dawg“ og „gorilla glue“. Kaup­andinn óskaði í kjölfarið eftir tveimur grömmum af einni tegund og þremur af annarri.

Sölumaður dauðans neitaði því að hafa selt fíkniefni og hélt því fram að annar maður hefði átt samskiptin í síma hans. Dómurinn taldi skýringar hans ótrú­verðugar og taldi sannað að hann hefði haft fíkni­efnin í vörslum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi