Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Einn maður á bráðamóttöku eftir eldsvoða í Hólahverfi

Tvær sextán ára vin­konur þurftu að vaða í gegnum kol­svartan reyk

Íbúðin
Íbúðin Einn var fluttur á bráða­mót­töku vegna elds­voð­ans Mynd: Aðsend

Eldur kvikn­aði í íbúð í fjöl­býl­is­húsi í Hóla­hverfi í Reykja­vík í kvöld og var einn maður fluttur á slysa­deild með reyk­eitrun og bruna­sár.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Stefáni Krist­ins­syni, varð­stjóra hjá Slökkvi­liði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, hefur eld­ur­inn verið slökktur og unnið er að því að reykræsta húsið. Slökkvi­lið fékk til­kynn­ingu um eld­inn um klukkan 21:15.

Við­bragðs­að­ilarTveir sjúkra­bílar voru sendir á vett­vang

Eldurinn var afmark­aður við eina íbúð en reyk­ur­inn barst út á stiga­gang­inn. Tveir sjúkra­bílar voru sendir á vett­vang og heil­brigð­is­starfs­fólk metur nú hvort fleiri hafi orðið fyrir áhrifum af reyknum. RÚV sagði frá mál­inu.

Sextán ára stúlka sem var í heim­sókn hjá vin­konu sinni í blokk­inni, þurfti að vaða kol­svartan reik til að kom­ast út á bílaplan. Í sam­tali við Mannlíf seg­ist hún vera í hálf­gerðu sjokki enda ekki lent í neinu slíku áður. „Við vin­kon­urnar vorum bara inni í her­bergi að spjalla þegar pabbi hennar kom inn og sagði að það væri kviknað í,“ sagði stúlkan í sam­tali við Mannlíf. „Þegar við komum út úr íbúð­inni var ekki mik­ill reykur en það var alveg mikil reyk­lykt. Þegar við vorum búin að ganga niður þrjá stiga­palla á stiga­gang­inum sáum við allt svart, reykur úti um allt.“ Stúlkan segir að hún, vin­konan og pabbi hennar hafi neyðst til að fara í gegnum kol­svartan reyk­inn en slökkvi­liðs­menn voru þá mættir á stiga­gang­inn. Eftir að hafa vaðað í gegnum reyk­inn byrj­aði stúlkunni að svima „Ég hélt að það myndi líða yfir mig en kall­aði á slökkvi­liðs­menn­ina „Ég get ekki farið lengra“ en átt­aði mig svo á að við vorum eig­in­lega komin út úr blokk­inni.“

ÍbúðinEldurinn hefur verið slökktur að fullu.

Þegar þau voru komin út úr blokk­inni brustu vin­kon­urnar í grát, enda mikið sjokk að lenda í svona elds­voða. En hvernig líður þér núna? „Bara ágæt­lega, ég var samt skjálf­andi rétt áðan og ennþá smá hrædd.“

Stelp­urnar reynd­ust ekki vera með reyk­eitrun og mátti vin­konan og faðir hennar fara aftur í íbúð sína en stúlkan sem Mannlíf ræddi við til síns heima.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu