Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Horft til Dags og Höllu

Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. Egg­erts­son.

Dauflegt er um að lit­ast í hópi for­seta­fram­bjóð­enda þar sem eng­inn sem þykir fram­bæri­legur í emb­ættið hefur enn gefið kost á sér. Áhuga­leysi almenn­ings á vænt­an­legum kosn­ingum er enda nær algjört.

Margir von­ast til að Guðni Th. Jóhann­es­son, núver­andi for­seti Íslands, vendi sínu kvæði í kross og hætti við að stíga til hliðar. Ein­hverjir vilja að Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra hætti sem for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG, og taki slag­inn um Bessa­staði. Það er þó varla mögu­legt og lít­ill bragur á því að yfir­gefa sökkvandi skip VG. Næst­ráð­andi hennar í flokknum, Svandís Svav­ars­dóttir, glímir við veik­indi og eng­inn í sjón­máli til að taka við flokknum og for­sæt­is­ráðu­neyt­inu af henni.

Dagur B. Egg­erts­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, er nefndur til sögu og talið að hann sé nú að íhuga hvort hann bjóði sig fram fyrir Sam­fylk­ingu í Reykja­vík eða stefni á Bessa­staði. Enn einn kost­ur­inn er sá að Halla Tóm­as­dóttir athafna­kona sem á sínum tíma tap­aði naum­lega fyrir Guðna fari öðru sinni í fram­boð. DV full­yrðir að hún sé að hugsa sinn gang og muni að lík­indum gefa kost á sér.

Gárungar nefna einnig þann mögu­leika að Davíð Oddsson, rit­stjóri Moggans sem fékk slæma útreið í slagnum við Guðna fyrir átta árum, reyni aftur að láta draum sinn um að verða for­seti ræt­ast. Bent er á að hann sé á svip­uðu reki og Donald Trump, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seti, og auk þess með líkar skoð­anir og lund­ar­far …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Slúður