Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Aðstoðar björgunarsveitina með dróna við eldgosið: „Það ætti að vera meira af lögreglu á svæðinu“

Ísak Atli Finnbogason, drónaflugmaður. Myndin er samsett.
Ísak Atli Finn­boga­son, dróna­flug­maður. Myndin er sam­sett.

Ísak Atli Finn­boga­son, einn fær­asti dróna­flug­maður lands­ins, var með þeim fyrstu sem mættu á gossvæðið. Ísak Atli hefur náð ótrú­legu myndefni af gos­inu og notar drón­ann sinn til að hjálpa lög­reglu með eft­ir­lit á svæð­inu.

„Gosið hófst klukkan 16:40 og ég var kom­inn að því um 19:00. Munurinn á leið­inni að þessu gosi og hinu er að það er mest megnis nokkuð sléttur veg­slóði alla leið­ina, hentar vel fyrir þá sem eiga góð fjalla­hjól með góðum dekkjum. Þetta eru um það bil 10 km aðra leið­ina þannig að fyrir þá sem eru fót­gang­andi þá er heill dagur sem fer í þetta myndi ég segja,“ sagði Ísak Atli í sam­tali við Mannlíf. 

Sumt fólk hefur harð­lega gagn­rýnt við­brögð yfir­valda þegar kemur að umferð­ar­stjórnun og aðgengi að gos­inu. „Mér finnst þau almennt hafa staðið sig nokkuð vel, það er mjög erfitt að stýra þús­undum manns sem vilja öll fara eins nálægt og eins fljótt að eld­gos­inu og þau geta. Það sést mjög lítið af lög­reglu á bíla­stæðum eða við gosið, nán­ast ein­ungis björg­un­ar­sveita­fólk sem er í sjálf­boða­vinnu. Mér per­sónu­lega finnst að það ætti að vera meira af lög­reglu á svæð­inu svo fólk taki fyr­ir­mælum betur,“ sagði Ísak um málið. 

„Eins og staðan er í dag þá var 2022 gosið tals­vert betra fyrir þá sem vildu kíkja og sjá gosið nálægt, það var hægt að vera uppi á hólum all­staðar í kring og hægt að sjá mjög vel ofan í gíg­inn frá öruggum stað. Í þessu gosi þá er tals­vert erf­ið­ara fyrir fólk að fá gott útsýni frá öruggu svæði,“ sagði Ísak um sam­an­burð­inn á nýja eld­gos­inu við þau eldri.

Eld­gosa­á­huga­menn víða um heim hafa reynt að sjá efni frá gos­inu á net­inu þar sem þeir kom­ast ekki til lands­ins og hefur Ísak orðið mjög var við það.

„Ég hef fengið ótal­mörg email og skila­boð þar sem fólk all­staðar frá heim­inum er að útskýra hversu þakk­lát það er fyrir að ég sé að senda svona góðar klippur út í beinni útsend­ingu. Það eru svo margir sem geta ekki kom­ist að gos­inu, bæði vegna þess að þau hafa ekki efni á að ferð­ast, kom­ast ekki vegna vinnu eða hafa ein­fald­lega ekki get­una til að labba yfir 20 km á einum degi til að sjá gosið. Svona útsend­ing hefur aldrei verið gerð áður í heim­inum svo ég viti til. Ég held að það sé bara allur heim­ur­inn að fylgj­ast með, fékk það meira að segja stað­fest að fólk er að horfa á útsend­ing­una frá Suð­ur­skauts­land­inu, ég verð bara að halda áfram meðan ég get.“ 

„Hár shutter & hátt frame-rate er eitt­hvað sem ég fýla þegar ég er að taka upp við gosið, ekki flýta þér of mikið og taktu frekar lengri klippur með mýkri hreyf­ingum. Passaðu þig að ekki stoppa drón­ann of nálægt, beint fyrir ofan gíg­inn eða gló­andi hraun, hiti leitar upp sem verður til þess að linsan eða drón­inn getur bráðnað,“ sagði Ísak um lyk­il­at­riði við að mynda eld­gos með dróna.

Einnig hefur Ísak verið að aðstoða björg­un­ar­sveit­ina og lög­regl­una á svæð­inu, sem horfa á beinar útsend­ingar Ísaks frá svæð­inu. Vilji þessir aðilar fá að sjá eitt­hvað ákveðið hafa þeir sam­band við Ísak sem flýgur þá þangað sem þeir vilja.

Hægt er að horfa á mynd­bönd Ísaks á Youtube-rás hans

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar