Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Hafdís ákvað ung að verða arkitekt og var einangruð í Danmörku vegna Covid: „Ég varð mjög einmana“

„Frá því að ég man eftir mér hefur mig alltaf langað til að vera arkitekt. Ég man eftir því að liggja á gólfinu að teikna fyrir framan sjón­varpið einhverja draumóra, núna er ég svo heilluð af því hvernig arkitektúr getur breytt heiminum. Rými og efnis­kennd hafa svo mikil áhrif á lífsgæði þeirra sem koma nálægt því, bæði innri notendur, sem dvelja í rýminu sjálfu, og ytri aðilar, sem upplifa rýmið mestmegnis utan frá. Arkitektúr segir svo mikið um okkur sem samfélag. Hann endur­speglar karakter okkar, hvar við búum í hnattrænu samhengi, út frá dagsbirtu og öðrum skilyrðum, hvernig við höfum þróast á þann stað sem við erum á í dag og hvert við stefnum. Þetta er mjög skemmtilegt fag að vinna í.“

Segir hin 35 ára Hafdís Anna, arkitekt og viðskipta­fræðingur sem settist niður með Mannlífi og sagði okkur frá verð­launum í arkitektúr, verkefni um birtu- og rökkur­skilyrðum og íslenskum arkitektúr.

Gott að fleiri taki þátt í samræðunum
„Arkitektúr byrjar alltaf með samtali og erfitt er að meta hver á að eiga það samtal. Eru það arkitektinn og verkkaupinn? Verkkaupinn er ekki alltaf sá sami og notandinn. Það er e.t.v. ekki eingöngu notandinn sem málið varðar, hvað með nágranna sem er annt um götu­myndina? Hvað með almenning og samfélagið í heild sinni? Mér finnst gott að fleiri taki þátt í samræðunum því þá gerir fólk sér betur grein fyrir verðmætum góðs arkitektúrs og er þá vonandi reiðubúnara sem samfélag til að fjárfesta í góðri hönnun í stað þess að sætta sig við lakari valkosti. Að því sögðu þá þurfa ekki allir að vera sammála um hvað góð hönnun sé, oft eru það einmitt umdeildustu byggingarnar sem með tíð og tíma fá mesta ástúð almennings. Samtalið þarf að eiga sér stað.“

Hafdís telur að arki­tektúr hafi áhrif á líðan okkar á svo marga vegu og segir að það sé gjör­ó­líkt að standa í stóru opnu rými eða litlu lok­uðu rými. Efn­is­kennd, birta og litir spila þar inn í.

„Þetta er vel þekkt og rannsakað, en við erum kannski ekki eins meðvituð um það í hversdags­leikanum, þegar við förum, yfirleitt frekar endur­tekið, á milli ákveðinna staða, hversu mikil áhrif sjálfur arkitektúrinn hefur á líðan okkar. Það er ekki fyrr en við skiptum skyndi­lega út frá vananum að við skynjum betur hversu mikið þetta hefur að segja um lífsgæði okkar, líðan og heilsu.“

Kerfið sjálft er nánast hannað til aðgreina og einfalda hlutina of mikið, ein lóð fyrir eitt hús í einum tilgangi, segir Hafdís.

„Fókusinn þarf að fara af lóðinni og yfir á það sem gerist á milli lóðanna. Hvernig við tengjum ólíka hluti saman á farsælan hátt, svo það styrki fjöl­breytilega notkun og upplifun.“

Borgar­skipulag er eign fólksins
Hún heldur áfram að útskýra fyrir okkur hver sé hennar sýn varðandi borgar­skipulagið hér á landi.

„Borg­ar­skipu­lag er eign fólks­ins sem býr í borg­inni, stefnan á að koma frá fólk­inu og ég held að við þurfum að færa yfir­sýn­ina úr loft­mynd­inni í „ google maps“ yfir í „ street view.“

Það er þar sem mannleg samskipti eiga sér stað og það er þar sem borgar­skipulag ætti að eiga sér stað í meira mæli. Þótt það sé meiri áskorun fyrir arkitekta þá þurfum við að veita fólkinu meiri stjórn. Hverfa­kosningar eru skref í rétta átt þar sem fólk kýs hvaða verkefni það vill sjá í hverfinu sínu.“

Rökkur­skilyrðin á Íslandi
Útskriftar­verkefni hennar var unnið á ensku og heitir „Where light and Darkness mingle“ sem vísar til þeirra skamm­vinnu rökkur­skilyrða sem eiga sér stað við sólar­upprás og sólsetur.

„Mig hafði alltaf langað til að vinna með rökkur­skilyrðin á Íslandi. Eftir frekari rann­sóknir komst ég að því að þessi rökkur­tími er mun lengri á Íslandi en sunnar og hefur því talsverð áhrif á menningu okkar, enda er oft minnst á sólroðin ský og sambærileg fyrirbæri í íslenskum dægur­lögum. Það er til afar lítið af upplýsingum um rökkur m.t.t. arkitektúrs og frekar en að líta á það sem sérstakt fyrirbæri þá er þetta yfirleitt bara flokkað sem eitthvað á milli dags og nætur.

Ég ljós­mynd­aði m.a. íslenskar grjót­teg­undir til að sjá hvernig efn­is­kennd þeirra breytt­ist í ólíkum birtu- og rökk­ur­skil­yrðum.“

Stór hluti af verk­efninu var kort­lagning þar sem hún notaði ólíka tækni úr kortagerð til að skilja og sýna fjöl­breytileika svæðisins. Hún ákvað að vinna með Elliða­árdalinn því henni fannst það svæði vera sem  „á milli“ ólíkra hluta Reykja­víkur.

„Þetta er líka flennistórt svæði með ólíkum birtu­skilyrðum en takmarkaðri innan­hússaðstöðu t.d. salerni og annað.“

Verkefni Hafdísar vann til verðlauna
Við útskriftina í sumar fékk verkefni Hafdísar svokölluðu Cebra-verð­launin, sem eru árlega veitt einum nemanda sem hefur á sann­færandi hátt með loka­verkefni sínu leitast við að færa mörk hefð­bundinnar nálgunar og skynjunar á arkitektúr og rými. Verð­launin veitir arkitekta­stofan CEBRA sem hefur starfað í Árósum frá árinu 2001.

„Þetta var mikill heiður og viðurkenning á því hvernig ég nálgaðist verkefnið. Þar sem ég reyndi ekki að einfalda svæðið eða afmarka það heldur að styrkja fjöl­breytilega notkun og upplifun með arkitektúr sem skapar samtímis fegurð og greinilegt notagildi. Þeir töldu það líka krefjast mikils hugrekkis að rannsaka hið flókna, óskilgreinanlega og síbreytilega, með ljóðrænum styrk og fegurð í bæði greiningum og arkitektúr.“

Meistara­námið í Árósum var mjög skemmtilegt, en krefjandi, segir Hafdís. Deildar­stjórinn (Bob Trempe) lagði mikið upp úr fjöl­breyttri tækni og að nemendur nýttu verk­stæðin sem voru í næsta rými við stúdíóið.

„Svo ég fékk tækifæri til að prófa ýmislegt, m.a. að þrívíddar­prenta og þrívíddar­skanna, fræsa, steypa brons, búa til módel með aðstoð sýndar­veruleika og nota vísinda­skáldskap sem innblástur fyrir framtíðar­heimilis­fólk. Það var góð æfing, því það tekur tíma fyrir það sem arkitektar teikna að verða að veruleika og svo standa byggingar yfirleitt yfir lengri tíma svo arkitektar þurfa að sjá fyrir framtíðar­þarfir fólks.“

Krefjandi tímar
Hafdís upplifði krefjandi tíma þegar hún var að sækja um skólavist. Þegar hún sótti fyrst um í arkitektúr­námið í Lista­háskóla Íslands voru bara teknir inn 15 nemendur og var hún 16. í röðinni og komst því miður ekki inn.

„Þess vegna fór ég í viðskipta­fræði á Bifröst, en þótt það nám hafi átt vel við mig þá kraumaði alltaf í manni þráin eftir að læra arkitektúr svo ég fór í Mynd­lista­skólann í Reykjavík í fornámið og sótti svo aftur um að því loknu og komst þá inn í Kaupmanna­höfn, þar sem ég lauk BA-námi mínu.“

Á þeim tíma voru hún og mað­ur­inn hennar komin inn í skóla í San Francisco en skóla­þreytan var farin að segja til sín svo þau ákváðu að fara frekar til Íslands og stofna fjöl­skyldu.

„Það var snúið að flytja aftur út sjö árum seinna með tvö börn, en við ákváðum að láta slag standa og færa okkur yfir til Árósa. Feðgarnir fluttu aftur heim hálfu ári seinna þar sem þeir voru ekki að una sér eins vel og við mægðurnar og það tók nokkuð mikið á.“

Stuttu síðar skall Covid á, skólanum úti var lokað og öll kennsla varð rafræn svo þær mæðgur fóru líka til Íslands. Þegar skólinn var opnaður aftur var stelpan þeirra búin að vera það lengi á Íslandi og byrjuð í íslenskum leikskóla að þau tóku þá ákvörðun að Hafdís færi ein út að klára síðustu önnina.

„Það var sérstak­lega erfitt þegar maður mátti ekki heldur hitta marga í Danmörku og ég varð mjög einmana á tímabili og saknaði mikið barnanna minna og mannsins míns. Sem betur fer komst ég til Íslands nokkrum sinnum því loka­verkefnið mitt tengdist Elliða­árdalnum og skólinn gaf mér leyfi til að ferðast til Íslands út af verk­efninu. Systkini og foreldrar okkar Bjössa veittu okkur öllum líka ómetanlegan stuðning á þessu tímabili og við hefðum ekki getað komist í gegnum þetta tímabil án þeirra.“

Nám, kennsla og fjölhæf hönnun
Í haust byrjaði Hafdís að kenna tölvu­teikningu fyrir annars árs nemendur í BA-námi við arkitektúr­deild Lista­háskóla Íslands. Fyrir tilviljun þá eru þessir nemendur að vinna verkefni með Elliða­árdalinn, sem er einmitt það svæðið sem hún vann með í útskriftar­verkefni sínu og varð til þess að fagstjóri BA-náms arkitektúr­deildarinnar, Massimo Santanicchia, bauð henni að vinna aðeins meira með þeim, „sem hefur verið mjög gaman.“

Hafdís vinnur nú á arkitekta­stofunni SeiStudio, sem er stofnuð af hjónunum Einari Hlé Einars­syni og Shruthi Basappa.

„Þar hef ég fengið að fara í mjög fjöl­breytt verk­efni og hlakka til að takast á við næstu verk­efni og áskor­anir.“

„Ég reyni að nálgast arkitektúrinn frá öllum hliðum og vinna jafnhendis með notagildi og fagur­fræði eða efnislega eigin­leika og andlega upplifun. Ég legg mig fram um að nýta þá ólíka og e.t.v. óhefðbundna tækni sem hentar verk­efninu hverju sinni, hvort sem það felur í sér notkun sýndar­veruleika eða gamaldags kortagerðar­aðferðir.

Ég vil að hönnun mín sé fjölhæf (e. Polyvalent) en stað­bundin. Þ.e.a.s. að þegar ég teikna tek ég mið af þeim aðstæðum sem eru fyrir hendi á staðnum, t.d. umhverfi og samfélagi, en gæti þess að nýta megi rýmið á ólíka vegu án þess að gera þurfi viða­miklar breytingar.

Það hefur verið mér hugleikið að vinna með það að skapa stað (e. Placemaking), hvernig teiknar maður rými þar sem fólk vill verja tíma sínum? Þar sem fólk vill staldra við og það er eitthvað sem er svo fallegt við arkitektúr því oft þarf þetta ekki að vera mjög stórt inngrip til að gjör­breyta upplifun okkar af rými.“

Hafdís er með heimasíðu, hafabra.myportfolio.com, þar sem hún hefur sett inn vinnu sína úr meistara­náminu ef fólk hefur áhuga á skoða verkin nánar og svo er hún líka með Instagram-reikning þar sem hún deilir ýmsum af þeim verkefnum sem hún hefur unnið eða er að vinna með @hafdis.anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi