Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Myrkvi gefur út lagið „Early Warning“: Eins og tesopi í vínglasi

Myrkvi gaf nýverið út smá­skíf­una Early Warning, sem er aðgengi­legt á helstu streym­isveitum hér, en í frétta­til­kynn­ingu segir að stemn­ingin í lag­inu sé slík að líkt sé að Myrkvi sé að slá upp garð­teiti og þér sé boðið, eft­ir­vænt­ing eftir deg­inum og jákvæðir straumar geisla frá lag­inu, því megi lýsa sem tesopa í vín­glasi eða stefnu­móti breta­popps og nútíma „slakker“ rokks.

Lagið er saumar­straumum hlaðið. Strax eftir fyrstu hlustun stendur maður sig að því að því að humma með lag­inu og ekki laust við að mann langi að fara og grafa upp gömlu Verve og Stone Roses disk­ana sína.

Mynd / Myrkvi / Early Warning

Myrkvi er sól­ó­verk­efni tón­list­ar­manns­ins Magnúsar Thorlacius en smá­skífan er sú síð­asta sem kemur út í aðdrag­anda útgáfu 10 laga sam­nefndrar plötu nú í haust. Magnús hefur sér til liðs Yngva Holm en þeir léku áður saman í hljóm­sveit­inni Vio sem stóð uppi sem sig­ur­veg­ari Mús­íktil­rauna árið 2014.

Magnús og Yngvi eru svo á leið með Myrkva til bæði Póllands og Þýska­lands nú í ágúst en með sér til halds og trausts hafa þeir Óskar Björn Bjarna­son og Ellert Schram.

Magnús lærði ungur á fiðlu en hann upp­götv­aði að hann lang­aði að semja tón­list og verða tón­list­ar­maður þegar hann heyrði Simon & Gar­funkel leika sína folk-skotnu, rödd­uðu gít­ar­plokks­músík en hann var far­inn að plokka gítar og semja tón­list á ung­lings­árum. Hljóm­sveitin Vio varð svo til en hann lýsir því að frammi­staða þeirra í Mús­íktil­raunum hafi komið bæði fjöl­skyldu hans og vinum í opna skjöldu.

„Maður var ekk­ert beint að sveifla þessu út en maður hafði alltaf trú á því að þetta væri eitt­hvað. Það kom því öllum pínu á óvart þegar Vio vann Mús­íktil­raunir.“

Platan vænt­an­lega var einmitt spiluð af með­limum Vio, hljóð­blöndum var í höndum Arnórns Sig­urð­ar­sonar en master­ingu ann­að­ist Sigurdór Guð­munds­son.

Hér má svo sjá tón­list­ar­mynd­band Myrkva við lagið Mis­era­ble People.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar