Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Dabbi T borðar skyndibita eftir leiki: „Vil frekar borga aðeins meira fyrir minni tíma“

Dabbi T dæmir í Subway-deildinni í körfubolta og býr í Laugardalnum
Dabbi T dæmir í Subway-deild­inni í körfu­bolta og býr í Laug­ar­dalnum

Davíð Tómas Tómasson, oft kall­aður Dabbi T, er neyt­andi vik­unnar. Davíð er alþjóð­legur körfu­bolta­dóm­ari sem dæmir í Subway-deild­unum en ásamt því vinnur hann hjá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Moodup og heldur nám­skeið og fyr­ir­lestra sem hjálpa fólki að bæta and­lega og lík­am­lega heilsu. Davíð er 34 ára gam­all og býr í Laug­ar­dalnum ásamt kær­ustu sinni.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?

Ég er ekki nægi­lega dug­legur að gera verð­sam­an­burð. Kærastan er mjög fylgin sér í því og spáir mikið hvar er hægt að gera bestu kjörin. Það mætti segja að hún væri „Spar­ar­inn“ og ég væri „Eyðarinn“.

Hvernig sparar þú í mat­ar­inn­kaupum? 

Ég reyni að gera flest mín mat­ar­inn­kaup í Bónus. Án þess að hafa gert mik­inn verð­sam­an­burð þá líður mér alltaf eins og ég sé næstum því að græða pen­inga ef ég versla í Bónus. Ég fer samt oft í þæg­indi fram yfir sparnað og enda oftar en ekki í rán­dýru hverf­is­búð­inni. Þegar ég geng út með tómt veskið þá segi ég alltaf við sjálfan mig að ég sé að styrkja inn­viði hverf­is­ins. Það lætur mér líða betur!

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Ég end­ur­nýti nán­ast ekk­ert. Finnst það mjög sjar­mer­andi þegar ég heyri af fólki sem gerir það en ég er ekki enn kom­inn á vagn­inn.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég reyni alltaf að „pri­orit­ise-a“ tím­ann minn fram yfir allt annað. Ég vil frekar borga aðeins meira fyrir minni tíma heldur en öfugt. Ég get þá notað tím­ann í hluti sem mér finnst vera betur varin í. Ég reyni því yfir­leitt að velja það sem er næst og fjót­leg­ast.

Hverju átt þú erf­ið­ast með að draga úr kaupum á? 

Ég á erf­ið­ast með að draga úr kaupum á skyndi­bita, sér­stak­lega á meðan körfu­bolta­tíma­bilið er í gangi. Það hentar ekki að borða kvöld­mat rétt fyrir leik og ég enda því yfir­leitt svangur, nýbú­inn að dæma, klukkan 21:30. Þá er rosa þægi­legt að grípa sér eitt­hvað fljót­legt á leið­inni heim.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Ég er ekki mjög djúpur á umhverf­is­mál­unum. Hef bara í sann­leika sagt ekki kynnt mér það nægi­lega vel. Við flokkum heima og ég reyni að vera sam­visku­samur í því en að öðru leyti geri ég mjög lítið. 

Annað sem þú vilt taka fram? 

Nei

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar