Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Björn spyr Stefán: „Á almennt að semja við launþega með sérstöku tilliti til þess hvar þeir búa?“

Myndin er samsett.
Myndin er sam­sett.

Björn Birgisson spyr Stefán Ólafsson fyrr­verandi prófessor spurninga varðandi kjarasamningsmál.

Samfélags­rýnirinn frá Grindavík, Björn Birgisson skrifar vinsælar færslur á Facebook-síðu sinni sem oftar en ekki hitta naglann á höfuðið að margra mati. Í nýlegri færslu veltir hann fyrir sér kröfum Eflingar í kjara­samnings­viðræðum sínum við Samtök atvinnu­lífsins en þær kröfur byggja meðal annars á ráðleggingum Stefáns Ólafs­sonar fyrrum prófessors Háskóla Íslands. Þeim ráðleggingum er Björn ósammála og spyr prófessorinn fyrr­verandi nokkurra spurninga. Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

„Starfs­heiður.

Þeir sem titla sig sem fræðimenn á einhverjum sviðum þurfa að sýna og sanna að það sé með réttu gert.

Hvernig?

Með fræðilegri hlut­lausri umfjöllun um málefni á þeirra sérsviði og með ályktana- og tillögu­gerð sem stenst alla skoðun og reynist vera rökrétt en ekki einhverjir hugarórar til að friða þá sem greiða viðkomandi launin.

Alvöru fræðimenn láta ekki frá sér pantaðar niður­stöður eða sérhannaðar tækifæris­niðurstöður.

Efling stendur í ströngu og er að margra mati búin að mála sig illilega út í horn með afleiðingum sem enginn veit hverjar verða, en margir óttast hið versta.

Ástæðan?

Forusta Eflingar byggir afstöðu sína meðal annars á útreikningum og ráðleggingum Stefáns Ólafs­sonar, fyrr­verandi prófesors við Háskóla Íslands, um að Eflingar­fólki beri hærri laun fyrir sömu vinnu vegna meiri kostnaðar við búsetu í Reykjavík en úti á landi.

Þá útreikninga dregur lands­byggðar­fólk reyndar mjög í efa og undrast niður­stöðurnar.

Ef niður­stöður og ráðleggingar Stefáns Ólafs­sonar hvað þetta varðar eru rökréttar og jafnvel fordæmis­gefandi í víðara samhengi þarf hann að geta svarað eftir­farandi spurningum:

* Á almennt að semja við launþega með sérstöku tilliti til þess hvar þeir búa, eða gildir það eingöngu fyrir félaga í Eflingu?

* Á hið opinbera, ríki og sveitar­félög, að semja við kennara og aðra starfs­menn með allt öðrum hætti í Reykjavík en á öðrum stöðum á landinu?

* Eiga þá háskóla­kennarar við Háskóla Íslands í Reykjavík að vera á hærri launum en kollegar þeirra við Háskólann á Akureyri eingöngu vegna búsetunnar og hærri framfærslu­kostnaðar í höfuð­borginni?

* Á meginþema varðandi kjara­samninga­gerð að vera tengt búsetu, sérsamningar fyrir Reykjavík og síðan samið um eitthvað allt annað fyrir íbúa annars staðar á landinu?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi