Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Óðinn og Björn segja stórslys í vændum: „Þjónkun gagnvart körlum sem eru í þessum bæ álitnir guðir“

Óðinn Jónsson, fyrr­verandi frétta­stjóri RÚV, er ekki alls kosta sáttur með áætlanir meirihlutans á Akureyri um að byggja blokkir sem gnæfa yfir fræga brekku bæjarins. Hann bendir einnig á að eðlilegra væri að leyfa öðrum að koma einnig með tillögur.

„Smekk­leysið með öruggan meirihluta í bæjar­stjórn Akureyrar. Dapurlegt að spilla svona heildar­myndinni af Innbænum og fallegri brekkunni ofan hans. Meirihlutinn samþykkti að fela verktaka­fyrirtæki að þróa þessi ósköp áfram en hafnaði tillögu um að hleypa öðrum að – hugsanlega með aðrar hugmyndir. Einn og sami verktakinn virðist ráða ferðinni í þróun byggðar í bænum. Já, mér er annt um heildar­svip gömlu Akureyrar,“ skrifar Óðinn á Facebook og birtir myndir af þessu.

Björn Þorláksson, annar fjölmiðla­maður á Akureyri, tekur undir með honum. „Einhver huglausasta, ábyrgðar­lausasta og skammsýnasta ákvörðun bæjar­fulltrúa á Akureyri var að leggja niður meirihluta og minni­hluta – útvatna stjórn bæjarins í einhverja djöfla­sýruhugmynd um Hálsaskóg þar sem allir áttu að vera vinir. Ef enginn snýst til varna hafa þeir betur sem fyrir hafa mestar bjargir! Var erfitt að skilja það? Í enn einu skipulags­slysinu sem nú er í uppsiglingu – enn einni þjónkuninni gagnvart körlum sem eru í þessum bæ álitnir guðir af því að þeir útvega stundum hnípnum íbúum vinnu, virðist engin leið að henda reiður á ábyrgð og sök ógæfunnar – því allir eru með öllum, allir í sleik,“ segir Björn.

Hann segir þetta einfald­lega smekk­leysu. „Heilt yfir verð ég að segja að öll 25 árin sem ég hef búið hér hefur einhver furðuleg blanda af vondum nýjungum og karp­stöðnun einkennt skipulagsmál og eru dæmin of mörg til að ég nenni að hefja upptalninguna. Ég mun ekki sakna snilli Akureyringa í þessum mála­flokki en ég tel að þeir hafi engan rétt til að rústa bænum með smekk­leysu – eins og minn ágæti vinur Óðinn Jónsson kallar það. Myndin er skjáskot af veggnum hans. Girðið ykkur nú í brók, bæjar­fulltrúar, og takið rugl ykkar til baka!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim