Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

María og Gunnar eiga 28 husky hunda

María vildi alltaf eiga gælu­dýr og nú rekur hún ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki í kringum 28 husky hundana sína

María Björk Guðmundsdóttir og Gunnar Eyfjörð Ómarsson með husky hundunum sínum
María Björk Guð­munds­dóttir og Gunnar Eyfjörð Ómarsson með husky hund­unum sínum Mynd: goHusky

María Björk Guð­munds­dóttir lang­aði alltaf í hund en þegar hún var að alast upp vildu for­eldrar hennar ekki eiga gælu­dýr, í dag á hún 28 husky hunda. María deildi sögu sinni á dög­unum í færslu í Facebook hópnum Hunda­sam­fé­lagið.

„Við hjónin eign­uð­umst okkar fyrsta hund, fyrir hreina til­viljun, árið 2011. Við vorum í 1. maí göngu og hittum vina­fólk sem spurði hvort við vildum koma og sjá hvolpa hjá þeim. Og það varð ekki aftur snúið, við féllum fyrir bláu aug­unum hennar Ösku okkar og urðum stoltir hunda­eig­endur,“ skrifar María Björk.

Hjónin María og Gunnar kynnt­ust hunda­sleða­sport­inu á Íslandi eftir að fá fyrsta husky hund­inn sinn, Ösku en vissu að þau gætu ekki tekið þátt með aðeins einn hund. Því leið ekki langt á að þau fengu sér annan husky sem þau nefndu Eldur og nokkru seinna bætt­ist Reykur við.

„Ein­hverjir hvolpar urðu nú til úr þessu og til að gera mjög langa sögu stutta þá var staðan þannig að í árs­byrjun 2019 bjuggum við í tví­býl­is­húsi á Akureyri með 3 börn, 2 ketti, 5 full­orðna husky hunda og 2 hvolpa!“ skrifar María en þau fluttu í kjöl­farið í sveit­ina, í Glæsibæ við Akureyri. „Við fundum svo drauma­húsið okkar úti í sveit, bættum við okkur hundum og höfum einnig verið með 4 got. Eigum í dag 28 hunda og rekum tvö fyr­ir­tæki tengd hund­unum okkar,“ skrifar María.

María og Gunnar stofn­uðu ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið goHusky sem býður upp á hunda­sleða­ferðir á vet­urna, göngu- eða hjóla­ferðir með hundana á sumrin og hunda klapp allan árs­ins hring. GoHusky hefur slegið í gegn á Instagram en þar eru þau með 210 þús­und fylgj­endur sem fylgj­ast með dag­legu lífi hjón­anna og 28 hundum þeirra.

Þau hjónin vöktu athygli fyrir fáeinum vikum á Vor í Vagla­skógi tón­leik­unum en þar voru þau að spinna og prjóna úr husky hárum. Husky hundar fara mikið úr hárum og hjón­unum þótti aga­legt að henda því öllu. Gunnar fór því á nám­skeið og lærði að spinna ull á rokki sem María prjónar ýmis­legt úr. Á býl­inu þeirra í Glæsibæ geta gestir keypt húfur, eyrna­skjól og fleira úr husky hárum.

„Við fáum mikið af krökkum til okkar í heim­sókn sem eru í sömu stöðu og ég, þau mega ekki eiga hund. Og ég segi öllum það sama, haltu áfram að láta þig dreyma, einn dag­inn ræt­ast draum­arnir,“ segir María Björk Guð­munds­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu