Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Tveir menn ógnuðu konu með hníf á heimili hennar: „Hrintu mér til hliðar og óðu inn í íbúðina“

Mynd / Skjáskot RÚV
Mynd / Skjáskot RÚV

Þann 14.ágúst 1984 gerðist það óhugnalega atvik að tveir menn réðust inn á heimili við Háteigsveg. Mennirnir voru vopnaðir hnífum og höfðu í hótunum við konuna sem þar bjó og ógnuðu henni með hnífum. DV fjallaði um málið en þar kom fram að mennirnir sögðust ætla að drepa eiginmann hennar sem var þá ekki heima. „Eftir að hafa hrætt konuna tóku þeir frá henni búr með páfa­gaukum í og héldu á brott með þeim orðum að þeir kæmu brátt aftur til að drepa manninn. Frá Háteigs­vegi héldu mennirnir í annað hús við Miklubraut þar sem þeir höfðu sams konar hótanir í frammi við stúlku sem þar býr,“ segir í frétt DV. Ekki leið á löngu þar til lögregla náði mönnunum og var annar þeirra settur í varðhald. Samkvæmt upplýsingum hjá Rannsóknar­lögreglunni sem hafði málið til meðferðar á þessum tíma voru mennirnir alræmdir glæpamenn og höfðu komið oft við sögu hjá lögreglunni á undan­förnum árum. Þá var tekið fram að báðir mennirnir hafi verið undir áhrifum vímuefna þegar atburðirnir gerðust.

„Þeir hringdu fyrst bjöllunni og komu svo upp og spurðu um Hilmar. Hann var ekki heima en þeir trúðu því ekki, hrintu mér til hliðar og óðu inn í íbúðina að leita að honum, sögðust komnir til að drepa hann,” sagði Erla Ragnars­dóttir í samtali við DV. Hún sagði annan manninn hafa verið mjög skugga­legan í útliti og virtist viti sínu fjær af heift. Hinn manninn sagði hún hafa verið venju­legan og mun rólegri en sá fyrri.

„Sá æstari var með hníf með sér sem hann otaði að mér og eftir hann eru hnífaför í borð­stofu­borðinu og á útidyrunum. Hann sagði sífellt: „Við komum aftur. Segðu honum að við komum aftur.” Ég veit ekki hvort þeir voru sárir en allavega var blóð eftir þá á hurðarhúninum og teppinu niðri,” sagði Erla. Eftir nokkra stund losnaði hún við mennina úr íbúðinni en höfðu þeir á brott með sér páfa­gaukabúr og tvo páfagauka sem þau hjónin áttu. Fuglarnir fundust síðar niðri í bæ. Hilmar, eigin­maður Erlu, leit málið alvarlegum augum og kærði báða mennina í kjölfarið. Aðspurð hvort hún hafi verið hrædd meðan á þessu stóð sagðist Erla hafa verið furðu róleg. Sjokkið hafi komið eftir að mennirnir fóru en þá hafi hún verið stjörf af hræðslu. Eins og áður kom fram voru mennirnir hand­teknir og ákærðir fyrir verknaðinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi