Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Furðulegt val Þorsteins harðlega gagnrýnt: „Mér finnst hún ekki alveg klár í þetta“

Bryndís Arna þykir sigurstrangleg í kosningu um besta leikmanninn en Þorsteinn landsliðsþjálfari vildi meina að hún væri ekki tilbúin fyrir landsliðið – myndin er samsett
Bryndís Arna þykir sig­ur­strang­leg í kosn­ingu um besta leik­mann­inn en Þor­steinn lands­liðs­þjálf­ari vildi meina að hún væri ekki til­búin fyrir lands­liðið – myndin er sam­sett

Óhætt er segja að knatt­spyrnu­unn­endur lands­ins hafi orðið hissa eftir til­kynnt var um val á lands­liði kvenna í knatt­spyrnu.

Í gær til­kynnti Þor­steinn Hall­dórs­son, lands­liðs­þjálf­ari, nöfn þeirra leik­manna sem verða í lands­liðs­hóp Íslands sem mætir Wales og Þýska­landi síðar í sept­em­ber. Val Þor­steins hefur verið harð­lega gagn­rýnt af knatt­spyrnu­unn­endum enda ekki á hverjum degi sem vara­mark­maður liðs fái sæti í lands­liði.

Orri Rafn Sig­urð­ar­son setti fram færslu um málið og upp­hófst áhuga­verð umræða í kringum valið í þræði Orra.

Þor­steinn ákvað að velja Söndru Sig­urð­ar­dóttur, vara­mark­mann Vals, í hóp­inn en fyrir um það bil hálfu ári ákvað Sandra að hætta knatt­spyrnu­iðkun og lagði hansk­ana á hill­una. Hún hætti nýlega við þá ákvörðun og hefur spilað einn leik í Bestu deild kvenna síðan. Óumdeilt er að Sandra sé ein af bestu mark­mönnum Íslands­sög­unnar en það hlýtur að telj­ast mikið áfall fyrir aðra mark­menn Bestu deildar kvenna að vara­mark­maður Vals sé valin fram yfir þær. 

Þor­steinn gaf upp ástæður vals­ins í við­tali við Fótbolti.net

„Mark­varð­ar­staðan er þannig að þér og mark­verð­inum líði vel með þær aðstæður sem þær fara út í. Það er fullt af mark­vörðum sem hafa spilað vel og aðrir mis­jafnir. Ég vil fara inn í verk­efnið með ákveðna reynslu, mér finnst það skipta gríð­ar­lega miklu máli. Þegar að maður er þjálf­ari þá þarf maður að taka erf­iðar ákvarð­anir, ég stend og fell með minni ákvörðun. Ég hef rætt þetta við marga í kringum mig og það hefur eng­inn sagt við mig neitt annað en að þetta sé rétt hjá mér,“ sagði Þor­steinn.

Þá hefur sú ákvörðun Þor­steins að velja ekki Bryndísi Örnu Níels­dóttur í lands­liðið vakið mikið umtal en Bryndís er lang­marka­hæst í Bestu deild kvenna en hún hefur skorað í 14 mörk í deild­inni. Næst­marka­hæsti leik­maður deild­ar­innar er Agla María Alberts­dóttir en hún hefur skorað sjö mörk, eða helm­ingi færri mörk en Bryndís. Þrír fram­herjar voru valdir í lands­liðið sem spila á Íslandi og hafa þeir skorað sam­tals 16 mörk. Enn meira umtal en sú ákvörðun að velja ekki Bryndísi eru þó orð sem Þor­steinn hafði um leik­mann­inn í við­tali við Fótbolti.net.

„Bara, mér finnst hún ekki alveg klár í þetta,“ sagði Þor­steinn um að velja ekki Bryndísi.

„Ég horfði á hana um dag­inn með U23 ára lands­lið­inu á móti Danmörku, það vant­aði svo­lítið upp á hjá henni þar. Maður horfir svo­lítið í það á alþjóð­legum mæli­kvarða hvar leik­menn standa. Mér fannst hún ekki klár eins og staðan er í dag. Vonandi sýnir hún bara í kom­andi leikjum með U23 ára lands­lið­inu að hún sé klár í A-lands­liðið.“

Eins og áður segir þá er Bryndís lang­marka­hæst í Bestu deild­inni og hlýtur að sú stað­reynd að hún skori á við þrjá fram­herja lands­liðs­ins til sam­ans að benda til þess að hún standi að minnsta á sama stað og þær á „alþjóð­legum mæli­kvarða“. Þá er þetta ekki fyrsta skipti sem Þor­steinn er gagn­rýndur fyrir að velja ekki Bryndísi en það kom mjög á óvart að hún hafi ekki verið valin í hóp­inn sein­ast þegar lands­liðið spil­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar