Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Karlinn sem gerði kraftaverkin – Nýr hlaðvarpsþáttur Jóns Sigurðar væntanlegur í kvöld

Heilagur Custodio
Heilagur Custodio

Er til fólk sem getur veitt blindum sýn, læknað fólk af krabba­meini og ljáð lömuðu fólki mátt í öllum líkamanum? Í Andalúsíu á Spáni trúa margir að svo sé og þess til sanninda­merkis benda þeir á sögu heilags manns sem Custodio hét. Hann féll reyndar frá árið 1961 en langar biðraðir við gamlan bænastað hans, sem er lítill hellir, sanna að fólk telur hann enn vera að störfum því fólk sækir þann stað enn í dag til að fá bót meina sinna. 

Af krafta­verka­manninum fara ýmsar sögur, ekki aðeins manna á milli heldur hefur rithöfundurinn Micheal Jacobs sagt frá honum í frægustu bók sinni, The Factory of Light, eða Ljós­fabrikkan. Þar segir, til dæmis, frá því þegar foreldrar fóru með lamaðan dreng sinn og ætluðu að taka hús á Custodio en rákust á hann á förnum vegi. Án frekari viðkynningar bað hann drenginn að koma niður af asnanum en foreldrar sögðu meinbugi á því og ætluðu að fara að útlysta fyrir honum sjúkra­sögu stráks. Custodio hlustaði hinsvegar ekki á slíkt tal og skipaði drengnum að koma niður af farstkjótanum. Loks lét drengurinn það eftir honum og, öllum til mikillar undrunar, stóð hann styrkum fótum loks þegar hann hafði jörð undir fótum og labbaði alheil­brigður til næsta bæjar.

Jón Sigurður Eyjólfsson, sem býr á þessu svæði, segir í hlaðvarps­þætti sínum Rúntað á Rucio, að á flestum heimilum á svæðinu finnist myndir af Heilögum Custodio, álíka þeim sem fólk hefur af dýrðlingum sínum. Stundum eru þær á sérstöku altari. Til eru svo og fleiri krafta­verkamenn af þessu tagi sem enn eru sagðir veita líkn þrátt fyrir að hafa horfið yfir móðuna miklu. Jón Sigurður hefur látið reyna á lækningar­máttinn í hellinum en án árangurs. Þó gerðist þar nokkuð sem gefur til kynna að sá gamli gæti enn verið að störfum en sagt verður frá því í þættinum.

Ekki kann Jón Sigurður sambærilegar sögur frá Íslandi nema þá helst af Guðrúnu Sigurðar­dóttur miðils sem sagði frá störfum sínum í bókinni Birtan að handan, sem kom út árið 1986. Notaði hún miðils­hæfileika sína til að koma fjölda fólks til aðstoðar, en margir leituðu á náðir hennar á löngum ferli, og tók hún aldrei eyrir fyrir. Einnig skráði hún sögur Ragn­heiðar Brynjólfs­dóttur, biskups­dóttur sem eignaðist barn í meinum á sautjándu öld, sem sagði miðlinum raunir sínar sem svo eru skráðar í bókinni. Custodio tók ekki heldur laun fyrir sín störf og enn síður barnabarn hans sem breytt hefur heimili krafta­verka­mannsins í safn. Þangað fór Jón Sigurður og fékk bágt fyrir þegar hann dró upp pyngju sína að heimsókn lokinni. „Við viljum ekkert svona hér,“ sagði afabarnið.

Sextándi hlaðvarps­þáttur Jóns Sigurðar; Rúntað á Rucio birtist á vef Mannlífs í kvöld og má bóka það að þátturinn verður bráð­skemmtilegur að vanda. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi