Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Engin gleði með Þórð

Vítalía Lazareva.
Vítalía Lazareva.

Þórður Már Jóhann­es­son, athafna­maður og einn af stærstu eig­endum Krón­unnar og N1, er enn einn sá umdeild­asti í við­skipta­líf­inu. Hann á nú von á því að verða end­ur­reistur. Þórður Már var bor­inn þungum sökum um kyn­ferðsi­legt áreyti af Vitalíu Lazereva og neydd­ist í fram­haldi til að segja af sér stjórn­ar­setu í Festi, móð­ur­fé­lagi Krón­unnar og N1. Nú hefur rofað til hjá Þórði í bili því til­nefn­inga­nefnd Festar leggur til að Þórður Már snúi aftur í stjórn á aðal­fundi félags­ins 6. mars. Þessi til­laga er vænt­an­lega komin fram í því ljósi að kæru­máli Vítalíu á hendur Þórði Má var vísað frá. Kæru pott­verj­anna á hendur Vítalíu og Arnars Grant, elsk­huga hennar, fyrir fjár­kúgun var einnig vísað frá.  málum því lokið og ekki verður rann­sakað frekar hvernig í pott­inn var búið. Flestum er ljóst að þótt ekki hafi verið brotin lög í pott­inum þá var sið­leysið ríkj­andi þegar Vítalíu mis­bauð.

Þrátt fyrir frá­vís­un­ina þykir Þórður ekki vera góður kostur til stjórn­ar­setu í Festi. Líf­eyr­is­sjóðir, sem eiga stærstan hluta í félag­inu, hafa nú risið upp á aft­ur­lapp­irnar og mót­mæla upp­reist Þórðar. Heim­ildin greinir frá þessu máli og vitnar til ráða­manna á vegum sjóð­anna. Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins er stærsti hlut­haf­inn í Festi og jafn­framt einn umfangs­mesti fjár­festir á íslenska hluta­bréfa­mark­aðnum. Stjórn sjóðs­ins lýsti yfir von­brigðum með störf til­nefn­ing­ar­nefndar Festis, í svari til Heim­ild­ar­innar.

„Við erum mót­fallin því að Þórður Már taki aftur sæti í stjórn,“ sagði í svar­inu. Óánægja er innan fleiri líf­eyr­is­sjóða og ljóst að engin gleði er með boð­aða end­ur­komu Þórðar. Reiknað er með átökum á aðal­fund­inum ef Þórður dregur ekki fram­boðið til baka …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Slúður