Nýtt og frítt tölublað Mannlífs er komið út og að þessu sinni er lesendum boðið upp á ferðalag um íslenska náttúru.
Í blaðinu má finna glæsilegt viðtal við Ólöfu Sívertssen forseta Ferðafélag Íslands, sem kosin var í sætið í mars síðastliðnum eftir miklar deilur innan félagsins.
Þá er rætt við fjallgöngugarpinn Einar Skúlason, stofnanda gönguklúbbsins Vesens og vergangs – og fleiri íslenska göngugarpa. Aðsendar ferðasögur, sjö skemmtilegustu fjöllin til að príla og fastir liðir og pistlar eru á sínum stað. Neytendamálin veita innsýn í verðlagningu í vegasjoppum víðsvegar um landið og þá má jafnframt finna má hollar og góðar nestishugmyndir fyrir ferðalagið.
Góða ferð!
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir