Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Breki stappaði á höfði manns og kýldi ítrekað

Auk þess var Breki fundinn sekur um ítrekuð fíkniefna- og vopna­lagabrot

Myndin tengist fréttinni ekki beint
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint Mynd: Shutterstock

Breki Þór Frímannsson hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi í Héraðs­dómi Reykja­víkur fyrir sérstak­lega hættulega líkams­árás, rán, fíkniefna- og vopna­lagabrot auk aksturs undir áhrifum fíkniefna. Þetta kemur fram í dómi sem nýlega var birtur á vefsíðu dómstóla.

Breki Þór játaði öll brotin skýlaust fyrir dómi. Meðal þess sem honum var gefið að sök var sérstak­lega hættuleg líkams­árás í íbúð í Reykjavík í febrúar 2023 þar sem hann kýldi mann ítrekað í höfuðið og stappaði á höfði hans meðan hann lá í gólfinu. Brota­þolinn hlaut meðal annars sár á höfði og mar á augnsvæði.

Þá var hann sakfelldur fyrir rán sem framið var í desember 2024 í félagi við annan mann. Þar var brotaþola ógnað með hnífi inni í bifreið og neyddur til að millifæra 36 þúsund krónur auk þess sem tekið var af honum reiðufé. Við leit á manninum fannst einnig marijúana í fórum hans.

Auk þess var Breki fundinn sekur um ítrekuð fíkniefna- og vopna­lagabrot, meðal annars vörslu amfetamíns, kókaíns, MDMA og metamfetamíns, sem og vörslu hnífa á almanna­færi. Hann var einnig dæmdur fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna sviptur ökurétti.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að líkams­árásin hefði verið fólskuleg og beinst að lífi og heilsu brotaþola. Einnig þótti það þyngja refsingu að ránið hefði verið framið í félagi við annan mann. Á móti kom að Breki játaði brotin greiðlega.

Breki var dæmdur til átta mánaða fangelsis­vistar og sviptur ökurétti í þrjú ár frá júlí 2027. Þá var gerð upptæk fíkniefni og tveir hnífar sem fundust í hans vörslum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi