Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Hörð gagnrýni á lögreglu vegna leiðavals að eldgosinu: Lögreglan lokar Keilisvegi með steinklumpum

Sigurður Sigurðarson er harðorður. Samsett mynd.
Sigurður Sig­urð­ar­son er harð­orður. Samsett mynd.

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum hefur lokað leið­inni að Keili með stein­blokkum í stað þess að vera með borða. Þar með er úti­lokað fyrir úti­vi­star­fólk að kom­ast þá leiðað gos­inu við Litla Hrút um Oddafell. Sú leið er helm­ingi styttri en leiðin frá bíla­stæð­inu við Slögu sem er um 20 kíló­metrar. Mannlíf benti á þessa skekkju í síð­ustu viku.

Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur tekið undir þessa gagn­rýni. Lög­reglan hefur einnig lokað veg­inum um Vig­dís­ar­velli þaðan sem eru um sömu­leiðis sam­an­legt 10 kíló­metrar að gos­s­töðv­unum. Hörð gagn­rýni hefur verið sett fram á yfir­völd vegna þessa. Ferða­fólk hefur lent í umtals­verðum óþæg­indum vegna meng­unar á langri leið í stað þess að koma úr norð­austri þar sem fólk hefði sloppið við meng­un­ina. Fólk hefur örmagn­ast og ferða­maður lést á svæð­inu. Engin hald­bær rök hafa komið frá lög­reglu um ástæðu þess að fólk þarf að leggja á sig slíkt erf­iði og aka í gegnum Grinda­vík til að sjá gosið og greiða bíla­stæða­gjald í óra­fjar­lægð frá gos­inu.

Úti­vist­ar­mað­ur­inn Sigurður Sig­urð­ar­son er harð­orður í blaða­grein í dag þar sem hann segir bestu leið­ina að gos­inu vera frá Króka­mýri í Móhálsa­dal.

Sigurður sendi tölvu­póst á Almanna­varnir og Lög­reglu­stjór­ann á Suð­ur­nesjum og spurð­ist fyrir um ástæðu þess að Vig­dís­ar­valla­vegi númer 428 var lokað. Lög­reglan útskýrði ekki lok­un­ina en Almanna­varnir báru við grjót­hruni á veg­inn. „Vegurinn er ekki tal­inn öruggur fyrir umferð vegna mögu­leika á grjót­hruni og nú þegar er grjót á veg­inum sem skapar hættu. Það liggur ekki fyrir hvenær veg­ur­inn verði opn­aður en sam­hæf­ing­ar­stöð tekur stöð­una reglu­lega,“ segir í póst­inum. Sigurður segir að þetta stand­ist ekki skoðun. Hann hafi ekið þar um og engar hindr­anir að sjá. Almanna­varnir segi ósatt, vilj­andi eða óvilj­andi.

Sigurður gagn­rýnir fjöl­miðla fyrir að spyrja ekki áleit­inna spurn­inga um það sem er í gangi á þessu svæði. Hann rifjar upp að sýslu­maður á Suðr­nesjum bann­aði börnum innan 12 ára að fara að gos­inu og fékk ákúrur frá Umboðs­manni Alþingis fyrir að fara á svig við lög. Ein spurn­ing­anna sem Sigurður leggur til að ragir blaða­menn, sem kiknað hafi í hnjánum, spyrji hvers vegna fólk sé þvingað til að ganga „Mera­dals­leið“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar