Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Frosti kominn í ótímabundið leyfi frá störfum: „Ég veit að ekkert getur bætt fyrir hegðun mína“

Frosti Logason Mynd / Heiða Helgadóttir
Frosti Logason Mynd / Heiða Helga­dóttir

Frosti Logason, fjöl­miðla­maður á Stöð 2, er kom­inn í leyfi frá störfum sínum hjá Sýn eftir að fyrr­ver­andi kærasta hans kom fram í við­tali og sak­aði hann um and­legt ofbeldi, fyrir og eftir sam­bands­slit. Þessu er greint frá á mbl.is.

Þór­hallur Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Miðla, stað­festir þetta í sam­tali við mbl.is og segir jafn­framt að Frosti hafi sjálfur óskað eftir því að fara í leyfi. Hann segir þó að málið hafi þegar verið til umræðu þegar Frosti bar fram beiðni sína.

Leyfi Frosta mun vera ótíma­bundið og að sögn Þórhalls ekki hægt að segja til um það á þessum tíma­punkti hvort það komi til með að leiða til upp­sagnar hans.

Edda Pét­urs­dóttir kom fram í við­tali í hlað­varp­inu Eigin Konur, þar sem hún lýsti and­legu ofbeldi í sinn garð frá fyrr­ver­andi kærasta sem hún var með í nokkur ár. Viðtalið birt­ist einnig í Stund­inni. Í gær kom í ljós að fyrrum kærast­inn er Frosti Logason. Edda lýsti því meðal ann­ars hvernig hann hafi tekið upp kyn­ferð­is­leg mynd­bönd af henni án hennar vit­undar og hótað því svo að birta þau, eftir að sam­band­inu lauk. Hún hafi setið undir hót­unum og áreiti frá honum í um ár eftir sam­bands­slitin og lifað í ótta í um ára­tug.

Frosti sendi frá sér yfir­lýs­ingu á Facebook í gær þar sem hann sagð­ist gang­ast við ásök­unum Eddu. Hann sagð­ist jafn­framt taka fulla ábyrgð á hegðun sinni. „Ég veit að ekk­ert getur bætt fyrir hegðun mína, það minnsta sem ég get gert er að gang­ast við því sem ég gerði og biðj­ast inni­lega afsök­unar,“ sagði Frosti í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu