Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Frænka Leslie Nielsen segir frá jarðarfararhrekk Naked Gun-stjörnunnar

Prumpu­vél gam­an­leik­ar­ans fékk að taka þátt í jarð­ar­för­inni

Leslie Nielsen
Leslie Nielsen Nielsen fékk jafn­vel gest­ina í jarð­ar­för sinni hlæja Mynd: ROBYN BECK / AFP

Frænka leik­ar­ans Leslie Nielsen heit­ins, Kyoko, þekkt á TikTok sem @kyokoandrudy, hefur nýlega deilt sögu af útför hans sem sýnir að hinn goð­sagna­kenndi húmor hans virð­ist hafa lifað hann sjálfan en Leslie lést í nóv­em­ber 2010.

Kyoko segir að sagan sé ein af hennar „upp­á­halds“ um föð­ur­bróð­ur­inn, þó hún hafi lengi hikað við að segja hana opin­ber­lega þar sem hún gerð­ist í jarð­ar­för. En þar sem ást hans á prump­hljóða­tækjum er nú almennt þekkt taldi hún tíma­bært að, eins og hún orð­aði það, að „sleppa þessu út í and­rúms­loftið“.

Loka­brand­ari Naked Gun-leik­ar­ans Nielsens gekk svona fyrir sig: Prump­hljóða­tæki var falið í kist­unni hans. Fjar­stýr­ingin sem stjórn­aði hátal­ar­anum við kist­una lá síðan á borði við opna bar­inn, já, jarð­ar­förin var með opnum bar og Kyoko lýsir henni fremur sem „stórri veislu“ með brúð­kaups­blæ en hefð­bund­inni kveðju­stund. Gestir sem sóttu sér drykk gátu ýtt á takk­ann og sent prump­hljóð yfir sal­inn, öðrum gestum til undr­unar.

„Fyrir þá sem stóðu þar í sorg og vissu ekki hvað var í gangi, hefði auð­veld­lega mátt halda að hljóðið kæmi frá lík­ama hans,“ sagði Kyoko. „Er það ekki bæði ótrú­lega ósmekk­legt og um leið ótrú­lega fyndið?“

Ekki er full­kom­lega ljóst hvort hug­myndin hafi upp­runa­lega verið hans sjálfs eða ekkju hans, en Kyoko segir að brand­ar­inn hafi full­kom­lega heiðrað bæði húmor Nielsens og þá arf­leifð sem hann skildi eftir sig.

Aðdá­endur hrósuðu brand­ar­anum í kjöl­far játn­ingar frænku Nielsens.

„Þetta er það Leslie Nielsen-leg­asta sem ég hef nokkurn tíma heyrt. Algjör snill­ingur 💙“

„Hann gaf orð­inu RIP alveg nýja merk­ingu.“

Nielsen var sem sagt kunnur fyrir prumpu­húmor. Á leg­stein­inum hans stendur: „Let ’er rip.“

„Guð, þessi maður var gim­steinn. Við þyrftum meira af svona gleði og húmor í dag,“ skrif­aði enn einn aðdá­and­inn.

Margir deildu einnig eigin upp­á­komum með Nielsen og prump­hljóða­vél­inni hans.

„Pabbi minn (lát­inn) vann við lýs­ingu í nokkrum myndum sem hann lék í og sagði margar sögur af prump­hljóða­vélum.“

„Hitti hann í Toronto-flug­velli sem barn. Ég veif­aði og hann kom til mín, en ég varð svo stressuð að ég fór að gráta – og þá ‘prump­aði’ hann og ég hló. Algjör hetja.“

Einn strætó­bíl­stjóri sagð­ist hafa fengið inn­blástur frá Nielsen til að „hafa alltaf prump­hljóða­tæki í rút­unni til að stríða krökk­unum“.

Lang­lífur brand­ari Nielsens hófst með lófatæki sem vinur hans, Duffy Martin, bjó til. Nielsen bar það með sér hvar sem hann fór og not­aði m.a. í við­tölum hjá Conan O’Brien og David Lett­erman.

Það er því ljóst að Nielsen skildi eftir sig arf­leifð sem minnir heim­inn á að taka lífið ekki of hátíð­lega, nema þá helst að muna að hafa gaman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Á bol mannsins stóð „Palletsign Acton“, en lögreglan virðist hafa lesið þar nafn samtakanna Palestine Action.

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr